Ágúst Bjarni Garðarsson, fyrrverandi þingmaður Framsóknarflokksins og formaður handknattleiksdeildar FH, les HSÍ pistilinn og sakar sambandið um metnaðarleysi í færslu á Facebook-síðu sinni.
Ágúst tók við sem formaður deildarinnar fyrir nokkrum mánuðum en FH tapaði fyrir Fram, 3:1, í undanúrslitaeinvígi liðanna á dögunum.
Eftir fyrstu mánuði sína er Ágúst þó ekki ánægður með HSÍ og telur að sambandið þurfi á „nauðsynlegri naflaskoðun að halda á öllum sviðum“.
Jón Halldórsson, nýkjörinn formaður sambandsins, viðurkenndi í samtali við Vísi að sambandið væri í hættu að verða gjaldþrota.
„Það er í raun og veru ekkert eitt, það er allt. Markaðs- og kynningarstarf er í skötulíki. Það er enginn metnaður til að gera betur og fjármálin eru fyrir neðan allar hellur.
Það er smáborgarabragur þegar kemur að dómaramálum og öllum samskiptum við dómara og eftirlitsmenn. Ítrekaðir hagsmunaárekstrar á svo mörgum sviðum og allur „infrastrúktur“ er í molum. Verkefni nýrrar forystu er ærið. En þarna þarf að hreinsa all verulega til og hugsa hlutina upp á nýtt.
Ég vil þakka öllum þeim sem komu til að styðja við liðin okkar í vetur. Sá stuðningur sýnir hversu stórt félagið okkar er í raun og veru. Við erum deildarmeistarar - gleymum því aldrei,“ stendur jafnframt í færslunni.