Mikill liðstyrkur fyrir Fram

Ásdís Guðmundsdóttir í leik með ÍBV á móti KA/Þór.
Ásdís Guðmundsdóttir í leik með ÍBV á móti KA/Þór. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Handknattleiksdeild Fram hefur gengið frá samningi við Ásdísi Guðmundsdóttur og mun hún leika með liðinu frá og með næsta tímabili.

Línukonan lék ekki handbolta á tímabilinu sem er að líða en var með ÍBV á síðasta tímabili. Hún hefur einnig leikið með Skara í Svíþjóð og KA/Þór en hún er uppalin á Akureyri.

Ásdís hefur leikið tíu landsleiki fyrir Ísland og var í stóru hlutverki þegar KA/Þór varð Íslands- og bikarmeistari árið 2021.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert