Fáum að heyra það ef við komum ekki á leiki

Sigríður Unnur Jónsdóttir er mætt til Spánar.
Sigríður Unnur Jónsdóttir er mætt til Spánar. mbl.is/Jóhann Ingi

Lilja og Ásdís Þóra Ágústsdætur verða í eldlínunni þegar Valur mætir Porrino úrslitaeinvígi Evrópubikarsins í handbolta. Fyrri leikurinn fer fram á morgun klukkan 15 og sá seinni á Hlíðarenda viku seinna.

Sigríður Unnur Jónsdóttir móðir þeirra þjálfaði dætur sínar í gegnum yngri flokka og faðir þeirra Ágúst Jóhannsson hefur þjálfað þær í meistaraflokki undanfarin ári.

„Það er rosalega mikið talað handbolta á heimilinu,“ sagði Sigríður í samtali við mbl.is í Vigo á Spáni, þar sem hún er mætt til að fylgjast með dætrum og eiginmanni í fyrri leiknum.

„Ég byrjaði að þjálfa þær þegar þær voru litlar og þær hafa ekki losnað við okkur foreldrana í sínum þjálfarateymum. Þær eru orðnar vanar því að hafa okkur á hliðarlínunni og með sér í þessu ferðalagi allan tímann.

Við fáum alltaf að heyra það þegar við komumst ekki á leiki. Þetta gerir okkur samheldnari og það er ótrúlega gaman og mikilvægt að fá að fylgja þeim,“ sagði Sigríður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert