Íslenska karlalandsliðið í handknattleik tryggði sér sigur í 3. riðli undankeppni EM 2026 með öruggum sigri á Bosníu, 34:25, í Sarajevó á miðvikudagskvöld.
„Ég var ánægður með leikinn. Þetta var fín frammistaða. Auðvitað finnur maður alltaf eitthvað hér og þar. Mér fannst vanta aðeins upp á varnarlega, sérstaklega í fyrri hálfleik, en við fáum samt bara á okkur 13 mörk.
Í sjálfu sér er það ekki eitthvað alslæmt en það eru svona hlutir sem við höfum gert betur upp á síðkastið sem vantaði aðeins upp á. Mér fannst við svo sem alveg laga það í seinni hálfleik og þeir fóru í 7 á 6.
Þá fáum við þá hluti sem við vorum að biðja um en svo kom aðeins slæmur kafli þegar ég fór að hrófla við liðinu, sem er ekkert óeðlilegt heldur.
En þetta var fagmannlega gert, strákarnir voru einbeittir og hafa verið það í allri undankeppninni, sem er eitthvað sem ég hef kallað eftir. Það er fínt,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari í samtali við mbl.is fyrir æfingu í Víkinni í dag.
Ísland mætir Georgíu í lokaumferð 3. riðils. Úrslitin í honum eru ráðin; Ísland vinnur riðilinn og Georgía hafnar í öðru sæti. Bæði lið fara því á lokamótið.
Hvernig heldurðu að það muni ganga að fá leikmenn til að finna hvatningu innra með sér fyrir þýðingarlítinn leik?
„Það var mikilvægt að vera í fyrsta sætinu og nú er það í höfn. Upp á það að gera skiptir leikurinn á sunnudaginn ekki máli en fyrir mér eru þetta nokkrir hlutir. Við erum að reyna að verða betri.
Gluggarnir eru ekki margir og leikirnir ekki margir þannig að við þurfum að nýta þá. Þetta er landsleikur, þú ert að spila fyrir Íslands hönd og þá er það nánast bara skylda að þú gerir það eins og þú eigir lífið að leysa.
Þar fyrir utan reikna ég með troðfullri Laugardalshöll og það eitt og sér á að vera nóg til að mótivera menn. Þeir eiga ekkert að þurfa mig í það.
Svo er kannski það síðasta, ég kem til að nota leikinn til þess að æfa eitthvað sem ég vil jafnvel gera og sjá áður en það kemur að janúar. En að einhverju leyti nálgast ég leikinn öðruvísi en ef þetta væri upp á líf og dauða,“ sagði hann.
Spurður nánar út í lið Georgíu sagði Snorri Steinn:
„Þeir unnu í gær og eru komnir á EM. Þeir hafa verið ótrúlega seigir í þessari undankeppni. Þetta var erfiður leikur úti í Georgíu. Þeir unnu Bosníu og hafa bara verið góðir. Þeir eru með sterkt byrjunarlið en eru laskaðir.
Það er óljóst hverjir koma til landsins en þeir verða ekki með sitt sterkasta lið. Það liggur fyrir. En fyrir mína parta, allavega í dag, er ég með fókus á okkur og hvað við erum að gera. Mér finnst þetta snúast miklu meira um það heldur en andstæðinginn, allavega á sunnudaginn.“