Stórleikur Aldísar og titillinn í sjónmáli

Aldís Ásta Heimisdóttir er í stóru hlutverki hjá Skara.
Aldís Ásta Heimisdóttir er í stóru hlutverki hjá Skara. Ljósmynd/Viktor Ljungström

Aldís Ásta Heimisdóttir átti stórleik í kvöld þegar lið hennar, Skara, steig stórt skref í átt að sínum fyrsta meistaratitli í sænska handboltanum með því að vinna Sävehof á útivelli í Gautaborg, 27:22.

Þar með er staðan í einvíginu orðin 2:0, Skara í hag, og liðið getur nú tryggt sér meistaratitilinn í þriðja leiknum á sínum heimavelli á mánudagskvöldið kemur.

Aldís var besti leikmaður vallarins samkvæmt umfjöllun á síðu deildarinnar, sérstaklega í fyrri hálfleik, og lék vörn Sävehof oft grátt. Hún skoraði fimm mörk í leiknum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert