Þá ertu ekki handboltaáhugamaður, punktur

Hafdís Renötudóttir kampakát eftir sigurinn í undanúrslitum.
Hafdís Renötudóttir kampakát eftir sigurinn í undanúrslitum. mbl.is/Hákon

„Þetta hljómar fáránlega vel,“ sagði Hafdís Renötudóttir, landsliðsmarkvörður í handbolta og leikmaður Vals, í samtali við mbl.is um úrslitaeinvígið gegn spænska liðinu Porrino sem fram undan er í Evrópubikarnum.

„Ég trúi varla að við séum í þessari stöðu. Ég trúði varla að við gætum unnið Málaga í 16-liða úrslitum. Við erum greinilega með öflugt lið og ætlum að mæta til þess að vinna,“ sagði Hafdís, sem er afar spennt fyrir leikjunum.

Fyrri leikurinn er á Spáni næsta laugardag og sá seinni á Hlíðarenda viku síðar. „Ég er mjög eirðarlaus yfir þessu. Ég finn fyrir mikilli pressu og ég þrái þetta ótrúlega heitt. Ég er að reyna að stilla mig að til að geta spilað góðan og öruggan leik.“

„Það er algjör gulrót að bikarinn fari á loft á heimavelli. Við þurfum að sjá til þess að rétt lið haldi á honum í lokin. Ef þú mætir ekki á þennan leik þá ertu ekki handboltaáhugamaður, punktur,“ sagði Hafdís ákveðin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert