Það sem kemst næst stórmótum

Elín Rósa Magnúsdóttir
Elín Rósa Magnúsdóttir mbl.is/Karítas

Elín Rósa Magnúsdóttir, leikmaður Vals í handbolta, er afar spennt fyrir úrslitum Evrópubikarsins, þar sem Valur mætir spænska liðinu Porrino. Fyrri leikurinn fer fram ytra á morgun, laugardag, og sá seinni viku síðar á Hlíðarenda.

„Við erum mjög þéttur hópur og Evrópukeppnin hefur spilað stórt hlutverk þar,“ sagði Elín í samtali við mbl.is. Að vera saman allan daginn er öðruvísi en að mæta bara á æfingar. Það gerir mikið fyrir hópinn,“ bætti hún við.

Porrino er sem stendur í fjórða sæti deildarinnar á Spáni með 35 stig. Valur vann Rincón, sem er í öðru sæti með 42 stig, í 16-liða úrslitum keppninnar. Ættu möguleikarnir því að vera fínir í úrslitaeinvíginu.

„Toppbaráttan í þessari deild er mjög jöfn og efstu liðin hafa verið að vinna hvert annað. Það er kannski ekki að marka hvar liðin eru í töflunni en við teljum möguleikana vera mikla,“ sagði Elín.

Hún hefur farið á tvö síðustu stórmót með íslenska landsliðinu og fyrir henni er úrslitaeinvígi í Evrópubikarnum lítið síðra.

„Þetta er svipað, þótt það sé öðruvísi heiður að spila fyrir þjóðina sína. Þetta er það sem kemst næst því með félagsliði. Það er alveg hægt að bera þetta saman.“

Hún er ánægð með að byrja á útivelli og fá tækifæri til að lyfta Evrópubikarnum á heimavelli.

„Það var rosalega gott að heyra að við fengum heimaleikinn í seinni leiknum. Það gefur okkur góða möguleika, jafnvel ef leikurinn úti fer illa,“ sagði Elín.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert