Færi sem ég þurfti að klára

Elín Rósa Magnúsdóttir og Elísa Elíasdóttir eftir leik.
Elín Rósa Magnúsdóttir og Elísa Elíasdóttir eftir leik. mbl.is/Jóhann Ingi

Valur gerði 29:29-jafntefli gegn Porrino frá Spáni í fyrri leik liðanna í úrslitum Evrópubikars kvenna í handbolta í Porrino í dag. Elín Rósa Magnúsdóttir, sem skoraði fimm mörk í dag, náði í fjölda vítakasta og lék gríðarlega vel, mætti í viðtal til mbl.is eftir leik.

„Við vorum svolitlir klaufar í seinni hálfleik. Við vorum að tapa mörgum boltum og kannski smá óöruggar á boltanum. Þær koma í framliggjandi 3-3 vörn og við fórum að gera hluti sem við erum kannski ekki vanar. Það klikkaði svolítið en samt sem áður ánægð með þessi úrslit á mjög erfiðum útivelli,“ sagði Elín Rósa í samtali við mbl.is eftir leik. 

Það var mikil stemning í höllinni meðan á leik stóð. Elín sagði að það hafi verið frábært að spila í svona aðstæðum.

„Þetta var bara geggjað og frábært að fá að spila í svona aðstæðum þar sem allir eru á móti þér. Þú þarft að sjúga yfir þig orkuna og ná að nýta hana á réttan hátt.“ 

Elín Rósa skoraði síðasta mark Valskvenna í leiknum til að koma þeim yfir áður en Porrino jafnaði í blálokin. 

„Við erum búnar að gera þetta svo oft á æfingu að ég var ekki mikið að hugsa. Svona yfirtala snýst bara um góðan undirbúning frá hinum og ég fékk opið færi sem ég þurfti að klára.“

Hvernig líst þér á seinni leikinn, er þetta ekki fín staða fyrir hann?

„Jú svo sem, við hugsum hvort eð er alltaf að það sé 0:0 sama hver staðan er og núna er 0:0 þannig þetta er fínt.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert