„Mín upplifun af leiknum var bara fín. Það er gaman að vera kominn aftur í landsliðið,“ sagði Arnar Freyr Arnarsson, línumaður íslenska landsliðsins í handknattleik, um öruggan sigur á Bosníu í undankeppni EM 2026 á miðvikudagskvöld.
„Þetta var pottþéttur sigur. Það var eitthvað sem við hefðum mátt gera betur og eitthvað sem var gott líka. Það var gott að vinna á útivelli og kannski ekkert meira um það að segja,“ sagði Arnar Freyr í samtali við mbl.is fyrir æfingu í Víkinni í gær.
Ísland tryggði sér efsta sæti 3. riðils undankeppninnar með sigrinum og sagði hann það vissulega ánægjulegt.
„Heldur betur. Það var nú markmiðið okkar að vera með fullt hús stiga þegar riðillinn er búinn. Það er einn eftir leikur en það var allavega fínt að klára Bosníuleikinn. Svo er bara Georgía eftir.“
Ísland mætir Georgíu í lokaumferð riðilsins í Laugardalshöll á morgun. Georgía hafnar í öðru sæti og fylgir íslenska liðinu á EM. Spurður hvers mætti vænta af georgíska liðinu sagði Arnar Freyr:
„Hvað skal segja? Við vorum að fá upplýsingar núna um að það vantaði einhverja þrjá leikmenn hjá þeim en ég veit ekki einu sinni hvaða leikmenn það eru. En við búumst við hörkuleik.
Þeir eru með góða hægri skyttu og við reynum að halda honum aðeins niðri. Annars býst ég við þeim svipuðum og í fyrri leiknum. Þeir voru góðir úti en við erum á heimavelli og þurfum að mæta af fullum krafti til þess að sigra þá og til þess að enda þetta vel.“
Þar sem ljóst er hvaða lið hafna í efstu tveimur sætunum hefur leikurinn á morgun litla þýðingu.
„Nei einmitt en eins og ég segi var markmiðið okkar að enda með fullt hús stiga þannig að markmiðinu er ekki náð. Svo er þetta líka á heimavelli og það verður full höll.
Auðvitað vill maður að það verði gaman fyrir íslensku þjóðina að koma og horfa á leikinn. Að við náum einum sigri í viðbót og klárum þetta með fullu húsi stiga þannig að við getum farið sáttir heim,“ sagði hann að endingu.