„Við eigum mikið inni,“ sagði Elísa Elíasdóttir, Eyjakonan í liði Vals, eftir 29:29-jafntefli við Porrino í fyrri úrslitaleik liðanna í Evrópubikarnum í handbolta á Spáni í dag.
„Þetta var rosalega erfiður útivöllur en á sama tíma rosalega gaman og frábær upplifun. Ég hef góða tilfinningu fyrir þessu einvígi og spennt fyrir seinni leiknum,“ bætti hún við.
Valur náði mest fimm marka forskoti í byrjun seinni hálfleiks en þá tók við erfiður kafli og Porrino jafnaði. Valsliðið sýndi mikinn styrk í að komast aftur yfir og búa til æsispennandi lokakafla.
„Auðvitað er svekkjandi að missa þetta svona niður en við vorum einum færri stóran hluta seinni hálfleiks og það er erfið staða. Ef þú hefðir sagt mér fyrir leik að þetta yrði staðan hefði ég tekið því,“ sagði hún.
Lætin í höllinni voru gríðarleg og um erfitt verkefni fyrir Valsliðið að ræða.
„Það var erfitt. Maður heyrði eiginlega ekki neitt í neinum. Maður þurfti að lesa hugsanir hinna og vona það besta. Ég er rosalega þakklát fyrir þann stuðning sem við fengum líka. Ég set kröfu á fulla höll í heimaleiknum,“ sagði Elísa.