Leyfi mér ekki að fara í þessa hugsun

Ágúst Þór Jóhannsson er klár í slaginn.
Ágúst Þór Jóhannsson er klár í slaginn. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ágúst Jóhannsson, þjálfari kvennaliðs Vals í handbolta, er spenntur fyrir einvígi liðsins gegn Porrino frá Spáni sem hefst með fyrri leiknum ytra í dag. Eigast liðin við í úrslitum Evrópubikarsins.

„Mér líður vel. Það er alltaf gott þegar síðasta æfingin er búin og við erum búin að fara í gegnum hlutina sem við reiknum með að fá á okkur. Við fundum í kvöld og aftur á morgun og gerum ráð fyrir því að stelpurnar verði tilbúnar í verkefnið,“ sagði Ágúst við mbl.is í gær og hélt áfram:

„Við erum búin að eyða miklum tíma í að fara yfir liðið og við höfum undirbúið okkur vel. Nú snýst þetta líka um að halda réttu spennustigi í hópnum og ef það tekst getum við staðið okkur vel. Þetta er stórt verkefni en við erum með reynslumikið lið,“ sagði hann.

Seinni leikurinn fer fram á Hlíðarenda eftir viku og fær Valur þá tækifæri til að lyfta Evrópubikarnum á heimavelli ef vel fer.

„Auðvitað hugsaði maður þegar dregið var að það gæti verið gott að enda á heimavelli. Það er draumur að vinna þar en það er fjarlægður draumur. Ég er búinn að vera það lengi í þessu að ég leyfi mér ekki að fara í þessa hugsun,“ sagði Ágúst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert