Kvennalið Vals í handbolta æfði í síðasta sinn fyrir fyrri leik sinn gegn spænska liðinu Porrino í úrslitum Evrópubikarsins í keppnishöllinni í gær.
Höllin tekur um 2.000 manns í sæti og er búist við að hún verði nær full og mikil stemning. Porrino er lítill bær í nágrenni við Vigo á norðvesturhorni Spánar.
Blaðamaður mbl.is hefur fylgt Valsliðinu síðustu daga og tók hann meðfylgjandi myndir af höllinni á æfingunni í gær.