Lyftist upp og fer með henni í skotið

Guðríður ræddi við mbl.is í Vigo á Spáni.
Guðríður ræddi við mbl.is í Vigo á Spáni. mbl.is/Jóhann Ingi

Guðríður Guðjónsdóttir, fyrrverandi landsliðsfyrirliði í handbolta, fylgist náið með dóttur sinni Sigríði Hauksdóttur en Sigríður er leikmaður Vals og fyrrverandi leikmaður íslenska landsliðsins.

Guðríður viðurkenndi í samtali við mbl.is að það væri erfiðara að horfa á dóttur sína á vellinum en að vera á honum sjálf á sínum tíma.

„Það er rosalega gaman en ofboðslega erfitt, miklu erfiðara en að vera sjálf inni á vellinum. Maður er með fiðrildi í maganum og það er stress yfir hvernig gengur.

Maður lyftist upp og fer með henni í skotið þegar hún fer inn úr færi,“ sagði Guðríður við mbl.is á Vigo á Spáni en Valur mætir Porrino í fyrri leik úrslita Evrópubikarsins á morgun.

Móðir og dóttir Guðríðar eru nöfnur og hafa leikið með landsliðinu, eins og Guðríður sjálf. En er von á fleirum úr fjölskyldunni í landsliðið?

„Ég er með eina litla sem er í fótbolta og einn lítinn sem er í handbolta og fótbolta. Sonur hennar Siggu er svo þriggja ára, við sjáum hvað setur,“ sagði hún.

Eins og gefur að skilja er mikið rætt um íþróttir í fjölskyldunni en Guðríður sinnir einnig öðrum áhugamálum.

„Ég er íþróttakennari líka og við tölum mikið um íþróttir. Við gerum samt margt annað. Við erum dugleg að ferðast og erum öll mikil náttúrubörn. Eftir að ég hætti að þjálfa hef ég verið mikið í fjallgöngum. Það er mikið talað um handbolta og fótbolta þegar við hittumst samt,“ sagði Guðríður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert