Sigríður Unnur Jónsdóttir er stolt móðir og eiginkona en dætur hennar Lilja og Ásdís Þóra Ágústsdætur eru á leiðinni í úrslitaeinvígi Evrópubikarsins í handbolta með pabba sinn Ágúst Jóhannsson á hliðarlínunni.
„Það er ótrúlega skemmtilegt. Ég samgleðst þeim að hafa staðið sig svona vel í þessari keppni. Ég er rosalega stolt af þeim,“ sagði Sigríður í samtali við mbl.is í Vigo á Spáni.
Valur mætir spænska liðinu Porrino í úrslitum. Fyrri leikurinn fer fram á Spáni í dag og sá seinni á Hlíðarenda eftir viku.
„Þetta er risastórt. Þær eru búnar að fara í gegnum marga erfiða leiki á móti flottum liðum. Þetta er magnað afrek og maður átti ekki endilega von á að þær færu alla leið. Þær hafa svo sannarlega sýnt að þær eiga heima þarna.“
En hvernig er að horfa á lið sem tvær dætur spila með og eiginmaðurinn þjálfar?
„Það er rosalega spes. Ég er oft með hnút í maganum og sérstaklega þegar systurnar eru báðar inni á. Maður er með mikinn fiðring í maganum þegar þær eru í stórum hlutverkum í spennuleikjum,“ sagði hún.
Fari svo að Valur vinni einvígið mun liðið lyfta Evrópubikarnum fyrir framan sitt fólk á Hlíðarenda.
„Það væri magnað. Það er skemmtilegt að fá seinni leikinn heima. Ég vona innilega að þær fái að lyfta þessum bikar sem þær eru búnar að puða vel fyrir í allan vetur. Þetta er stór stund í íslenskum handbolta og vonandi ná önnur lið að fylgja þessu eftir,“ sagði Sigríður.