„Miðað við hvernig leikurinn þróaðist hefði maður þegið tveggja marka sigur,“ sagði Ágúst Jóhannsson, þjálfari kvennalið Vals í handbolta, í samtali við mbl.is eftir 29:29-jafntefli gegn Porrino í fyrri leik liðanna í úrslitum Evrópubikarsins á Spáni í dag.
„Fyrir fram hefði ég alltaf tekið þessu. Við spiluðum frábærlega í sókninni stóran hluta leiks. Við eigum inni í vörninni, sérstaklega í seinni hálfleik, og sömuleiðis markvörslu. Ég er sannfærður um að við bætum það fyrir næsta leik.“
Valur náði mest fimm marka forskoti í byrjun seinni hálfleiks en Porrino neitaði að gefast upp.
„Svona er handboltinn. Þetta voru ógeðslega erfiðar aðstæður og ég er ánægður með hvernig við héldum haus allan tímann. Við hefðum auðveldlega getað tapað þessu með 5-6 mörkum. Við vorum í basli undir lokin en við náðum jafnteflinu og það er hörkuleikur fram undan á Hlíðarenda.“
Gríðarleg læti í höllinni gerði bæði leikmönnum og þjálfaranum erfitt fyrir á köflum.
„Það var mjög erfitt enda gríðarleg læti hérna. Við gerðum þetta samt vel og við mætum vel undirbúin fyrir seinni leikinn fyrir framan fullt hús á heimavelli. Ef við bætum litla hluti hér og þar getum við klárað þetta,“ sagði Ágúst.