Verður væntanlega klikkun

Hildur í keppnishöllinni á Spáni.
Hildur í keppnishöllinni á Spáni. mbl.is/Jóhann Ingi

„Við erum tilbúnar í þetta,“ sagði Hildur Björnsdóttir fyrirliði Vals í samtali við mbl.is um fyrri leik liðsins við Porrino frá Spáni í úrslitum Evrópubikarsins í handbolta sem fram fer í dag klukkan 15.

Valsliðið æfði í keppnishöllinni í gær og er klárt í slaginn. „Það var gott að æfa í höllinni og læra aðeins á nýjan stað. Það tekur alltaf smá tíma að venjast nýjum keppnishöllum,“ sagði Hildur.

Valsliðinu hefur gengið mjög vel á útivelli í keppninni til þessa og ekki tapað einum einasta leik.

„Samstaðan í liðinu hjálpar. Þegar við spilum eins og lið þá skiptir varla hvar við erum. Þetta verður væntanlega klikkun hérna, 2.000 áhorfendur og allir brjálaðir.“

Hildur viðurkenndi að spennustigið væri hátt, þar sem íslenskt lið er í fyrsta skipti í úrslitum í Evrópukeppni í kvennaflokki.

„Það eru taugar til staðar hjá okkur öllum. Það hefur enginn gert þetta áður á Íslandi. Það er heiður að vera hérna og við megum ekki gleyma að njóta. Þetta er risastórt,“ sagði hún.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert