Viktor sá fjórði hjá Barcelona

Viktor Gísli Hallgrímsson mun feta í fótspor Guðjóns Vals Sigurðssonar.
Viktor Gísli Hallgrímsson mun feta í fótspor Guðjóns Vals Sigurðssonar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Þegar landsliðsmarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson klæðist markmannstreyju Barcelona verður hann fjórði Íslendingurinn sem spilar fyrir stórliðið í Katalóníu í íþróttinni. 

Viggó Sigurðsson ruddi brautina árið 1978 eftir góða spilamennsku með Víkingi og lék með Barcelona 1978 til 1980. 

Viggó Sigurðsson er í seinni tíð þekktari fyrir þjálfaraferilinn en …
Viggó Sigurðsson er í seinni tíð þekktari fyrir þjálfaraferilinn en leikmannaferilinn. mbl.is/Þorkell Þorkelsson

Gróttumaðurinn Guðjón Valur Sigurðsson lék með Barcelona árin 2014 til 2016. 

FH-ingurinn Aron Pálmarsson lék með Barcelona árin 2017 til 2021. 

Það þóttu mikil tíðindi á sínum tíma þegar Barcelona tókst …
Það þóttu mikil tíðindi á sínum tíma þegar Barcelona tókst að næla í Aron Pálmarsson frá öðru stórliði: Veszprém í Ungverjalandi. Ljósmynd/Barcelona

Framarinn Viktor Gísli er því í góðum félagsskap en Barcelona hefur verið stórlið í handboltanum í áratugi og raunar í þremur boltagreinum. Viggó, Guðjón Valur og Aron urðu allir spænskir meistarar með liðinu og Guðjón Valur var jafnframt í sigurliði Barcelona í Meistaradeild Evrópu. 

Eiður varð Evrópumeistari

Þegar allt er talið verður Viktor Gísli sjötti Íslendingurinn sem semur við Barcelona. 

ÍR-ingurinn Eiður Smári Guðjohnsen lék með knattspyrnuliði Barcelona 2006 til 2009 og var í liðinu sem sigraði í Meistaradeildinni árið 2009 eins og frægt varð. 

Eiður Smári Guðjohnsen lék með heimsþekktum leikmönnum eins og Ronaldinho …
Eiður Smári Guðjohnsen lék með heimsþekktum leikmönnum eins og Ronaldinho hjá Barcelona. AFP

Haukamaðurinn Kári Jónsson var um tíma hjá Barcelona en lék ekki með aðalliði félagsins í körfuknattleik. Kári var einungis 21 árs þegar hann samdi við félagið en hinir Íslendingarnir fimm voru allir orðnir þekkt nöfn í bransanum þegar þeir fóru til Katalóníu. 

Kári Jónsson er einn þeirra sem komu Íslandi í lokakeppni …
Kári Jónsson er einn þeirra sem komu Íslandi í lokakeppni EM í körfunni sem fram fer síðsumars. mbl.is/Eggert Jóhannesson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert