Tilvalið að fræðast

mbl.is/Þórunn

Þar sem allri keppni lýkur í kvöld mun landsmót bjóða upp á hestatengda dagskrá á mótssvæðinu á sunnudaginn 3. júlí frá kl. 10 til 15. Dagurinn verður undirlagður hestatengdum viðburðum, s.s. fyrirlestrum og sýnikennslu frá fremstu fræðimönnum og reiðkennurum íslenska hestsins. Aðgangur verður ókeypis.

Opið hús verður á Brúnastöðum fyrir gesti mótsins. Sigurvegarar gæðingakeppninnar og hæst dæmdu kynbótahrossin verða til sýnis. 

Víkingur Gunnarsson og Guðrún Stefánsdóttir munu kynna rannsókn sína um „Áhrif þyngdar knapans á lífeðlisfræðilega þætti hestsins og hreyfingar hans á tölti“.

Þorvaldur Kristjánsson kynbótadómari mun útskýra bæði hæfileika- og byggingardóma íslenska hestsins. 

Olil Amble og Bergur Jónsson munu segja frá hrossaræktarbúi sínu, Gangmyllunni, sem var ræktunarbú ársins og keppnishestabú ársins 2015.

Trymbill frá Þúfum og Korgur frá Ingólfshvoli munu leika listir sínar og sýna gæðingafimi. Heimsmeistarinn í gæðingskeiði 2015 mun sýna og segja frá þjálfun á skeiðhesti. Fjallað verður um gæðingakeppnina og sýnt frá smalabraut. Litið verður til fortíðar og nútíðar í íslenskri reiðhefð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert