Hátíð fyrir hesta og menn

„Bein útsending verður frá mótinu á laugardagskvöldinu 7. júlí og …
„Bein útsending verður frá mótinu á laugardagskvöldinu 7. júlí og allan sunnudaginn 8. júlí og einnig höfð sú nýbreytni á útsendingunni að vera með sérstakt landsmótssett, með svipuðu fyrirkomulagi og áhorfendur þekkja frá HM-stofunni,“ segir Þórdís Anna Gylfadóttir landsmótsstjóri. Um 1.000 hross eru væntanleg á mótið. mbl.is/Haraldur Jónasson

Þórdís Anna Gylfadóttir hefur haft í nóg að snúast við að skipuleggja viðburð komandi viku. Þórdís Anna er mótsstjóri Landsmóts hestamanna 2018 og verður á þeytingi um mótssvæðið enda þarf í mörg horn að líta.

Að þessu sinni munu landsmótsgestir verða varir við ýmsar breytingar, bæði stórar og smáar, en allar eru þær gerðar til að gera viðburðinn ánægjulegri fyrir hesta og menn. „Breytingarnar má sjá strax á fyrsta degi mótsins, 1. júlí, en þá fer fram keppni í barna- og unglingaflokkum og höfum við ókeypis inn á mótssvæðið. Þetta þýðir að bæði mamma og pabbi, systur og bræður, amma og afi, frændur, frænkur og vinir geta komið og fylgst með unga fólkinu án þess að greiða aðgangseyri og vonandi að fyrir vikið verði áhorfendabrekkan full af fólki sem hvetur næstu kynslóð knapa til dáða og fylgist með,“ segir Þórdís og lofar magnaðri sýningu, enda gefa börnin fullorðnu keppendunum ekkert eftir.

Skipulagi mótsins hefur líka verið breytt til að gera dagskrána sem þægilegasta fyrir hestana. „Við högum keppninni þannig að núna er heill dagur gefinn á milli keppnisatriða í hverjum flokki. Hestur sem kemur í forkeppni fær heilan dag til að hvíla sig áður en keppt er í milliriðli, og svo aftur a.m.k. dag til að hvílast fyrir úrslit,“ útskýrir Þórdís Anna og bendir á að það reyni bæði á hest og knapa að þurfa að keppa hvern daginn á fætur öðrum. „Við leggjum okkur líka fram við að taka tillit til heimsmeistaramótsins í knattspyrnu og munum sýna frá leikjum á risaskjá hér á landsmótinu.“

Mótinu gerð góð skil í sjónvarpi

Stigið verður mikilvægt skref á þessu landsmóti til að auka sýnileika íslenskra hestaíþrótta og mun Ríkissjónvarpið sýna beint frá lokahelgi mótsins. „Ríkissjónvarpið hefur áður verið með beinar útsendingar frá mótinu en umfangið hefur aldrei verið svona mikið. Bein útsending verður frá mótinu á laugardagskvöldinu 7. júlí og allan sunnudaginn 8. júlí og einnig höfð sú nýbreytni á útsendingunni að vera með sérstakt landsmótssett, með svipuðu fyrirkomulagi og áhorfendur þekkja frá HM-stofunni þar sem sérfræðingar mæta og fjalla um keppnina,“ útskýrir Þórdís, en Hulda G. Geirsdóttir og Gísli Einarsson verða þáttastjórnendur.

Áhugasamir geta líka horft á allt landsmótið í beinu streymi yfir netið í gegnum Oz.com. „Eins og undanfarin ár verður hægt að fylgjast með mótinu í gegnum streymið og munum við einnig auka þjónstuna þar töluvert,“ segir Þórdís. Unnendur íslenska hestsins um allan heim geta keypt aðgang að streymisútsendingu af öllum viðburðum og fylgst með landsins bestu knöpum og hestum bæði í beinni útsendingu og á upptökum.

Ómissandi hefðir

Þrátt fyrir ýmsar nýjungar er dagskrá landsmótsins í megindráttum með svipuðu sniði og gestir eiga að venjast og vitaskuld verða skemmtilegum hefðum mótsins gerð góð skil. „Framan af vikunni er dagskráin tiltölulega létt en þegar líður á vikuna fer dagskráin að þéttast smám saman. Eftir að yfirliti stóðhesta lýkur á föstudegi færum við mótið alfarið yfir á gæðingavöllinn og þá verða dagarnir lengri yfir úrslitahelgina,“ segir Þórdís Anna. „Kappreiðar verða bæði á þriðjudag og föstudag, og margir sem vilja alls ekki missa af töltkeppninni en þar hefst forkeppni á fimmtudagskvöld og endar á A-úrslitum á laugardagskvöldi. Sjálf setningarathöfn landsmótsins fer síðan fram á fimmtudagskvöldinu og venju samkvæmt ríða þá fulltrúar hestamannafélaganna inn á völlinn í fallegri hópreið, í félagsbúningum og með fána síns félags.“

Af öðrum hápunktum má nefna keppni í 100 m skeiði og veitingu Sleipnisbikarsins á laugardagskvöldið. „Einnig er mjög gaman að fylgjast með kynbótahrossunum, en þar kemur fram rjóminn í íslenskri hrossarækt hverju sinni. Persónulega finnst mér skemmtilegast að fylgjast með yngstu graðhestunum,“ segir Þórdís.

Á sunnudeginum 8. júlí fara fram A-úrslit í ölllum flokkum gæðingakeppninnar og endað á úrslitum í A-flokki gæðinga.

Mikil tilhlökkun

Þórdís Anna segir undirbúning mótsins lofa góðu, í hestamannafélaginu Fáki sé mikill mannauður og félagsmenn tilbúnir til að leggja sitt af mörkum til að halda glæsilegt landsmót.

„Metfjöldi hrossa á keppnisrétt í gæðingakeppni landsmótsins í ár, nánar tiltekið 132 hross í fullorðinsflokkum og 126 hross í yngri flokkum. Keppnisrétturinn verður þó ekki alveg fullnýttur hjá öllum félögum,“ segir hún en keppnisrétturinn er reiknaður út frá fjölda félaga í Landssambandi hestamannafélaga. „Greinilegt er að það er fjölgun félaga á milli landsmóta. Búast má við um 500 hrossum til þátttöku í gæðingakeppninni. Svo bætast við hross í tölti og skeiðgreinum, kynbótasýningum og afkvæmasýningum. Í heildina má því búast við að ríflega 1.000 hross komi fram á landsmótinu.“

Er óhætt að segja að Þórdís Anna hlakki til landsmótsins, en sjálf hefur hún verið viðriðin hestamennsku frá barnsaldri og man vel eftir sínu fyrsta landsmóti, á Hellu árið 1994, þá aðeins þrettán ára gömul. Síðan þá hefur hún m.a. menntað sig í reiðmennsku og reiðkennslu og nánast alla sína starfsævi unnið störf tengd íslenska hestinum. Hún tekur núna í fjórða sinn þátt í að gera landsmót að veruleika. „Þetta er gríðarlega mikil vinna en jafnframt hrikalega skemmtilegt. Að mörgu er að huga enda er landsmót einn stærsti íþróttaviðburður sem haldinn er utandyra hér á landi en mótið sýnir líka hvað hestamenn geta verið öflugir þegar þeir leggjast á eitt,“ segir Þórdís Anna. „Við leggjum okkur fram við að hafa mótssvæðið eins gott og hægt er því við vitum að það er mikið í húfi fyrir keppendur og eigendur hrossanna. Að baki hverri sýningu í braut liggur mikill tími og vinna. Tilhlökkunin er gífurleg og ég á von á veislu fyrir unnendur íslenska hestsins.“

Margir leggja hönd á plóg

Í fyrsta sinn er það ekki Landsmót ehf., sem er í eigu Landssambands hestamannafélaga og Bændasamtaka Íslands, sem heldur mótið heldur er viðburðurinn allur í umsjón hestamannafélagsins Fáks sem hefur keypt réttinn til þess að halda Landsmótið 2018. „Það er við hæfi að við látum reyna á þetta nýja fyrirkomulag með elsta hestamannafélag landsins sem gestgjafa,“ segir Þórdís Anna.

Hún segir þetta fyrirkomulag hafa ýmsa kosti í för með sér en eðlilegt að það fylgi að upp komi ýmsar spurningar þegar tekið er upp breytt fyrirkomulag í mótahaldi á landsmóti. „En að hafa þennan háttinn á þýðir að Fákur hefur ákveðið frjálsræði með rekstur mótsins og nýtur góðs af því á ýmsa vegu að hýsa viðburðinn. Fákur getur líka nýtt sér þann mikla mannauð sem býr í félaginu og í krafti stærðar sinnar haldið vel heppnað mót með liðssinni fjölda sjálfboðaliða úr röðum Fáksmanna sem og annarra hesatmannafélaga.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert