Árni Björn og Flaumur fyrstir í fyrstu keppni

Árni Björn Pálsson og Flaumur.
Árni Björn Pálsson og Flaumur.

Það var margt um manninn í Samskipahöllinni í Kópavogi í gærkvöld en þar fór fram fyrsta keppni Meistaradeilarinnar í hestaíþróttum. Keppt var í fjórgangi og var spennan mikil enda margir búnir að bíða eftir því að keppnistímabilið hefjist.

Eftir forkeppni var Árni Björn Pálsson á Flaumi frá Sólvangi með nokkuð örugga forystu en þeir félagar eru Íslandsmeistarar í þessari grein. Það var mjótt á munum eftir forkeppni en sjö knapar nældu sér í sæti í úrslitunum.

Keppni í úrslitum hófst á hægu tölti en það var Ásmundur Ernir Snorrason á Fræg frá Strandarhöfði sem hlaut hæstu einkunn fyrir það atriði, rétt á eftir honum voru Árni Björn og Flaumur og Jakob Svavar Sigurðsson og Herkúles frá Ragnheiðarstöðum.

Top Reiter sigraði í liðakeppni kvöldsins.
Top Reiter sigraði í liðakeppni kvöldsins.

Eftir brokkið sem var næsta atriðið tóku þeir Árni og Flaumur forystuna og héldu henni allt til loka, 7,77 var lokaeinkunn þeirra og gullið í hönd. Annar var Ásmundur með 7,67 í einkunn og þriðji var Jakob með 7,53 í einkunn.

Lið Top Reiter fékk liðaskjöldinn, stigahæsta lið kvöldsins, í fjórgangnum en liðið átti tvo knapa í A-úrslitum, þau Árna Björn og Eyrúnu Ýr Pálsdóttur (6.sæti). Þau eru því með forystu í liðakeppninni en í öðru sæti er lið Hrímnis/Export hesta. Næsta keppni fer fram 14. febrúar en þá verður keppt í slaktaumatölti.

Niðurstöður úr A-úrslitum:

1 Árni Björn Pálsson Flaumur frá Sólvangi Top Reiter

2 Ásmundur Ernir Snorrason Frægur frá Strandarhöfði Auðsholtshjáleiga / Horse export

3 Jakob Svavar Sigurðsson Herkúles frá Ragnheiðarstöðum Lífland

4-5 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Óskar frá Breiðstöðum Ganghestar / Margrétarhof

4-5 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Sproti frá Enni Auðsholtshjáleiga / Horse export

6 Eyrún Ýr Pálsdóttir Kjarval frá Blönduósi Top Reiter

7 Siguroddur Pétursson Steggur frá Hrísdal Hrímnir / Export hestar

Niðurstöður úr forkeppni:

1 Árni Björn Pálsson Flaumur frá Sólvangi Top Reiter

2 Jakob Svavar Sigurðsson Herkúles frá Ragnheiðarstöðum Lífland

3 Ásmundur Ernir Snorrason Frægur frá Strandarhöfði Auðsholtshjáleiga / Horse export

4 Siguroddur Pétursson Steggur frá Hrísdal Hrímnir / Export hestar

5-7 Eyrún Ýr Pálsdóttir Kjarval frá Blönduósi Top Reiter

5-7 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Óskar frá Breiðstöðum Ganghestar / Margrétarhof

5-7 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Sproti frá Enni Auðsholtshjáleiga / Horse export

8-10 Elin Holst Frami frá Ketilsstöðum Gangmyllan

8-10 Hulda Gústafsdóttir Sesar frá Lönguskák Hestvit / Árbakki / Sumarliðabær

8-10 Viðar Ingólfsson Maístjarna frá Árbæjarhjáleigu II Hrímnir / Export hestar

11-13 Þórarinn Ragnarsson Leikur frá Vesturkoti Hrímnir / Export hestar

11-13 Hinrik Bragason Hrókur frá Hjarðartúni Hestvit / Árbakki / Sumarliðabær

11-13 Hanna Rún Ingibergsdóttir Grímur frá Skógarási Lífland

14-15 Matthías Leó Matthíasson Taktur frá Vakurstöðum Top Reiter

14-15 Arnar Bjarki Sigurðsson Hrafnfaxi frá Skeggsstöðum Torfhús retreat

16 Hanne Smidesang Roði frá Hala Torfhús retreat

17 Olil Amble, liðsstjóri Rauðka frá Ketilsstöðum Gangmyllan

18 Bergur Jónsson Glampi frá Ketilsstöðum Gangmyllan

19-20 John Kristinn Sigurjónsson Æska frá Akureyri Torfhús retreat

19-20 Ólafur Andri Guðmundsson Gerpla frá Feti Ganghestar / Margrétarhof

21 Sigursteinn Sumarliðason Háfeti frá Hákoti Lífland

22 Ragnhildur Haraldsdóttir Úlfur frá Mosfellsbæ Ganghestar / Margrétarhof

23 Ólafur Brynjar Ásgeirsson Glóinn frá Halakoti Hestvit / Árbakki / Sumarliðabær

24 Janus Halldór Eiríksson Selma frá Auðsholtshjáleigu Auðsholtshjáleiga / Horse export

Árni Björn Pálsson með verðlaunin.
Árni Björn Pálsson með verðlaunin.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert