Keppt í slaktaumatölti annað kvöld

Jakob S. Sigurðsson og Júlía frá Hamarsey unnu slaktaumatöltið í …
Jakob S. Sigurðsson og Júlía frá Hamarsey unnu slaktaumatöltið í fyrra.

Næsta keppni í Meistaradeildinni í hestaíþróttum er slaktaumatölt en það verður haldið í Samskipahöllinni í Spretti í Kópavogi annað kvöld, fimmtudagskvöld.

Keppni hefst kl. 19:00 en fyrstur í braut er Teitur Árnason á Brúneyju frá Grafarkoti en þau keppa fyrir lið Top Reiter. Teitur og Brúney voru í A-úrslitum í fyrra, þriðja sæti, og verður gaman að sjá hvort þau leiki sama leikinn í ár. Jakob S. Sigurðsson keppir á Júlíu frá Hamarsey en þau unnu þessa grein í fyrra. Sigurvegarar fjórgangsins, Árni og Flaumur, eru skráðir til leiks og verður spennandi að sjá hver árangurinn verður í þessari grein.

Villiköttur er skráður til leiks en hann keppir fyrir lið Auðsholtshjáleigu. Hvert lið hefur tækifæri á að nýta sér svokallaðan villikött einu sinni yfir keppnistímabilið.

Húsið verður opnað á slaginu 17:00 en eins og áður verður boðið upp á dýrindis veitingar og síðan kl. 17:45 verður Hesta-quiz, skemmtileg spurningakeppni um allt sem tengist hestamennsku. Ekki verður sýnt frá keppninni beint á RÚV2, einungis á ruv.is.

Ráslistinn er sem hér segir. Númer - Knapi - Hestur - Faðir - Móðir - Litur - Aldur - Lið

1 Teitur Árnason Brúney frá Grafarkoti Grettir frá Grafarkoti Surtsey frá Gröf Vatnsnesi Brúnn 13 Top Reiter

2 Sigursteinn Sumarliðason Háfeti frá Hákoti Hnokki frá Fellskoti Óðsbrá frá Hákoti Bleikál.10 Lífland

3 Villiköttur Auðsholtshjáleiga

4 Sigurður Sigurðarson Magni frá Þjóðólfshaga 1 Tindur frá Varmalæk Bjalla frá Hafsteinsstöðum Móál. 12 Gangmyllan

5 Jakob Svavar Sigurðsson Júlía frá Hamarsey Auður frá Lundum II Hviða frá Ingólfshvoli Bleikurfífilstj. 10 Lífland

6 Elin Holst Frami frá Ketilsstöðum Sveinn-Hervar frá Þúfu í Landeyjum Framkvæmd frá Ketilsstöðum Brúnn 12 Gangmyllan

7 Siguroddur Pétursson Eldborg frá Haukatungu Syðri 1 Álffinnur frá Syðri-Gegnishólum Mynd frá Haukatungu Syðri 1 Jarpur 8 Hrímnir/Export hestar

8 Ragnhildur Haraldsdóttir Þróttur frá Tungu Þokki frá Kýrholti Sól frá Tungu Brúnn 12 Ganghestar/Margrétarhof

9 Árni Björn Pálsson Flaumur frá Sólvangi Gaumur frá Auðsholtshjáleigu Fluga frá Breiðabólsstað Jarpur 10 Top Reiter

10 Sylvía Sigurbjörnsdóttir Roði frá Margrétarhofi Tjörvi frá Sunnuhvoli Hrefna frá Austvaðsholti 1 Rauðnös 11 Auðsholtshjáleiga

11 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Óskar frá Breiðstöðum Herjólfur frá Ragnheiðarstöðum Fantasía frá Breiðstöðum Jarpur 8 Ganghestar/Margrétarhof

12 Helga Una Björnsdóttir Þoka frá Hamarsey Herjólfur frá Ragnheiðarstöðum Þruma frá Hólshúsum Bleíkál 8 Hrímnir/Export hestar

13 Hinrik Bragason Hrókur frá Hjarðartúni Dagur frá Hjarðartúni Hryðja frá Margrétarhofi Rauðbles 8 Hestvit/Árbakki/Sumarliðabæ

14 Viðar Ingólfsson Sómi frá Kálfsstöðum Gaumur frá Auðsholtshjáleigu Æsa frá Neðra-Ási Jarpur 13 Hrímnir/Export hestar

15 Arnar Bjarki Sigurðarson Hrafnfaxi frá Skeggsstöðum Gammur frá Steinnesi Irpa frá Skeggsstöðum Brúnn 12 Torfhús

16 Bergur Jónsson Goði frá Ketilsstöðum Álffinnur frá Syðri-Gegnishólum Vænting frá Ketilsstöðum Brúnn 9 Gangmyllan

17 John Sigurjónsson Æska frá Akureyri Kappi frá Kommu Hrönn frá Búlandi Jarpur 9 Torfhús

18 Matthías Leó Matthíasson Taktur frá Vakurstöðum Smári frá Skagaströnd Líra frá Vakurstöðum Brúnn 8 Top Reiter

19 Reynir Örn Pálmason Brimnir frá Efri-Fitjum Hnokki frá Fellskoti Ballerína frá Grafarkoti Bleikál.10 Ganghestar/Margrétarhof

20 Gústaf Ásgeir Hinriksson Ömmustrákur frá Ásmundarstöðum 3 Arður frá Brautarholti Gullhetta frá Ásmundarstöðum Rauður 9 Hestvit/Árbakki/Sumarliðabær

21 Ásmundur Ernir Snorrason Frægur frá Strandarhöfði Hnokki frá Fellskoti Framtíð frá Árnagerði Rauður 10 Auðsholtshjáleiga

22 Sigurbjörn Bárðarson Flói frá Oddhóli Aris frá Akureyri Folda frá Lundi Móál. 10 Torfhús

23 Hanna Rún Ingibergsdóttir Mörður frá Kirkjubæ Valtýr frá Kirkjubæ Lilja frá Kirkjubæ Rauðbles 11 Lífland

24 Jóhanna Margrét Snorradóttir Bárður frá Melabergi Héðinn frá Feti Skrítla frá Grímstungu Grár 9 Hestvit/Árbakki/Sumarliðabær

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert