Jóhanna og Kári hefja keppnina í kvöld

Það stefnir allt í hörkukeppni í gæðingafiminni í meistaradeildinni í hestaíþróttum sem fer fram í kvöld í TM-höllinni í Víðidal í Reykjavík.  Jóhanna Margrét Snorradóttir er fyrst í braut en hún keppir á hestinum Kára frá Ásbrú fyrir hönd Hestvits/Árbakka/Sumarliðabæjar.

Það var Árni Björn Pálsson sem vann þessa grein í fyrra á Flaumi frá Sólvangi en þeir félagar eru skráðir aftur til leiks. Jakob Svavar Sigurðsson er efstur í einstaklingskeppninni en hann mætir með Konsert frá Hofi og eflaust eru margir spenntir að sjá hann í þessari grein. Aðalheiður Anna og Óskar frá Breiðsstöðum voru þriðju í þessari grein í fyrra og ætla sér eflaust að gera góða hluti í kvöld en hún er í öðru sæti í einstaklingskeppninni.

Það var mikið um villiketti í þessari grein í fyrra en ekkert er um þá í ár. Mjótt er á munum í liðakeppninni og verður spennandi að sjá hver niðurstaðan verður eftir gæðingafimina en enginn mun gefa tommu eftir. 

Húsið er opnað kl. 17:00 en eins og áður verður næg dagskrá þangað til keppni hefst. Veitingar verða í boði og mun Steinar Sigurbjörnsson verða með fyrirlestur í matsalnum kl 17:45. Keppni hefst síðan á slaginu 19:00. Miðasala er í fullum gangi inn á tix.is en einnig verður hægt að horfa á deildina í beinni á RÚV2. 

Næstu mót eru síðan skeiðmótið laugardaginn 23. mars og lokamótið 4. apríl að Fákaseli, Ingólfshvoli. 

Ráslisti – Gæðingafimi

Nr. Knapi Hestur Faðir Móðir Litur Aldur Lið

1 Jóhanna Margrét Snorradóttir Kári frá Ásbrú Kappi frá Kommu Samba frá Miðsitju Brúnn 9 Hestvit/Árbakki/Sumarliðabær
2 Árni Björn Pálsson Flaumur frá Sólvangi Gaumur frá Auðsholtshjáleigu Fluga frá Breiðabólsstað Jarpur 10 Top Reiter
3 Hanne Oustad Smidesang Roði frá Hala Mídas frá Kaldbak Fiðla frá Hala Rauður 10 Torfhús retreat
4 Teitur Árnason Brúney frá Grafarkoti Grettir frá Grafarkoti Surtsey frá Gröf Vatnsnesi Brún 13 Top Reiter
5 Ólafur Andri Guðmundsson Gerpla frá Feti Dugur frá Þúfu í Landeyjum Svartafjöður frá Feti Brún 8 Ganghestar/Margrétarhof
6 Hanna Rún Ingibergsdóttir Grímur frá Skógarási Herjólfur frá Ragnheiðarstöðum Lind frá Ármóti Jarpbles. 8 Lífland
7 Ragnhildur Haraldsdóttir Úlfur frá Mosfellsbæ Gjafar frá Hvoli Ösp frá Kollaleiru Brúnn 6 Ganghestar/Margrétarhof
8 Jakob Svavar Sigurðsson Konsert frá Hofi Ómur frá Kvistum Kantata frá Hofi Bleikstj. 9 Lífland
9 Hinrik Bragason Prins frá Hellu Þóroddur frá Þóroddsstöðum Perla frá Árbæ Rauðgló. 10 Hestvit/Árbakki/Sumarliðabær
10 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Sproti frá Enni Orri frá Þúfu í Landeyjum Sending frá Enni Brúnn 11 Auðsholtshjáleiga
11 Eyrún Ýr Pálsdóttir Kjarval frá Blönduósi Sveinn-Hervar frá Þúfu í Landeyjum Aríel frá Höskuldsstöðum Grár 15 Top Reiter
12 Elin Holst Frami frá Ketilsstöðum Sveinn-Hervar frá Þúfu í Landeyjum Framkvæmd frá Ketilsstöðum Brúnn 12 Gangmyllan
13 Hulda Gústafsdóttir Draupnir frá Brautarholti Aron frá Strandarhöfði Alda frá Brautarholti Brúnn 10 Hestvit/Árbakki/Sumarliðabær
14 Þórarinn Ragnarsson Leikur frá Vesturkoti Spuni frá Vesturkoti Líf frá Þúfu í Landeyjum Japur 8 Hrímnir/Export hestar
15 Ásmundur Ernir Snorrason Frægur frá Strandarhöfði Hnokki frá Fellskoti Framtíð frá Árnagerði Rauður 10 Auðsholtshjáleiga
16 Bergur Jónsson Glampi frá Ketilsstöðum Álffinnur frá Syðri-Gegnishólum Ör frá Ketilsstöðum Rauðnös. 8 Gangmyllan
17 Sigurbjörn Bárðarson Nagli frá Flagbjarnarholti Geisli frá Sælukoti Surtsey frá Feti Brúnn 11 Torfhús retreat
18 Viðar Ingólfsson Maístjarna frá Árbæjarhjáleigu II Óskar frá Blesastöðum 1A Móa frá Skarði Brún 8 Hrímnir/Export hestar
19 Guðmundur Björgvinsson Herkúles frá Ragnheiðarstöðum Álfur frá Selfossi Hending frá Úlfsstöðum Rauðskj. 9 Lífland
20 Olil Amble Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum Keilir frá Miðsitju Álfadís frá Selfossi Bleikbles. 10 Gangmyllan
21 Arnar Bjarki Sigurðarson Hrafnfaxi frá Skeggsstöðum Gammur frá Steinnesi Irpa frá Skeggsstöðum Brúnn 12 Torfhús retreat
22 Helga Una Björnsdóttir Þoka frá Hamarsey Herjólfur frá Ragnheiðarstöðum Þruma frá Hólshúsum Bleikál 8 Hrímnir/Export hestar
23 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Óskar frá Breiðstöðum Herjólfur frá Ragnheiðarstöðum Fantasía frá Breiðstöðum Jarpur 8 Ganghestar/Margrétarhof

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert