Kveikur mætir í Meistaradeildina

Það stefnir allt í stærstu hestaveislu ársins í Fákaseli annað kvöld, fimmtudagskvöldið 4. apríl, en á ráslistanum í Meistaradeildinni eru engar smá bombur.

Aðalheiður Anna ætlar ekki að gefa neitt eftir í einstaklingskeppninni og mætir með hæst dæmda klárhest í heimi og stjörnu síðasta Landsmóts, Kveik frá Stangarlæk. Þetta er frumraun Kveiks í keppni en hann hefur m.a. hlotið 10 fyrir tölt og vilja og geðslag.

Aðalheiður er sem stendur í öðru sæti í einstaklingskeppninni en einungis 3,5 stig skilja að hana og Jakob S. Sigurðsson en hann vann þessa grein í fyrra á Júlíu frá Hamarsey og ætla þau sér eflaust að leika sama leikinn í ár.

Árni Björn Pálsson mætir með glæsihryssuna Hátíð frá Hemlu II en hún hefur vakið mikla athygli fyrir föngulega framkomu. Ekki nóg með það að þá eru villikettir skráðir til leiks bæði í töltinu og flugskeiðinu, þá eru einnig í fyrsta sinn einhverjir eldhugar á ferð sem telja sig eiga erindi við þá bestu og eru þeir búnir að kaupa sig inn í keppnina í bæði tölti og skeiði.

Húsið verður opnað kl 17:00 en boðið verður upp á hlaðborð á undan með lambalæri og smjörsprautaðri kalkúnabringu ásamt dýrindismeðlæti á aðeins 2.900 kr. Miðar fást á tix.is en einnig verður hægt að horfa á keppnina í beinni á RÚV2.

RÁSLISTAR:

Tölt T1 – Meistaraflokkur
Nr. Knapi Hestur Faðir Móðir Litur Aldur Lið

1 Elin Holst Frami frá Ketilsstöðum Sveinn-Hervar frá Þúfu í Landeyjum Framkvæmd frá Ketilsstöðum Brúnn 12 Gangmyllan
2 Sigursteinn Sumarliðason Saga frá Blönduósi Sveinn-Skorri frá Blönduósi Rauðhetta frá Holti 2 Rauð 8 Lífland
3 John Sigurjónsson Æska frá Akureyri Kappi frá Kommu Hrönn frá Búlandi Jörp 9 Torfhús retreat
4 Ólafur Andri Guðmundsson Gerpla frá Feti Dugur frá Þúfu í Landeyjum Svartafjöður frá Feti Brún 8 Ganghestar/Margrétarhof
5 Sigurður Sigurðarson Líney frá Þjóðólfshaga 1 Sær frá Bakkakoti Ljúf frá Búðarhóli Jörp 7 Gangmyllan
6 Jakob Svavar Sigurðsson Júlía frá Hamarsey Auður frá Lundum II Hviða frá Ingólfshvoli Bleiktvístj. 10 Lífland
7 Þórdís Erla Gunnarsdóttir Terna frá Auðsholtshjáleigu Aron frá Strandarhöfði Trú frá Auðsholtshjáleigu Brúnn 11 Auðsholtshjáleiga
8 Árni Björn Pálsson Hátíð frá Hemlu II Þröstur frá Hvammi Hafrún frá Hemlu II Brúnn 9 Top Reiter
9 Teitur Árnason Brúney frá Grafarkoti Grettir frá Grafarkoti Surtsey frá Gröf Vatnsnesi Brún 13 Top Reiter
10 Jóhanna Margrét Snorradóttir Kári frá Ásbrú Kappi frá Kommu Samba frá Miðsitju Brúnn 9 Hestvit / Árbakki / Sumarliðabær
11 Siguroddur Pétursson Steggur frá Hrísdal Þristur frá Feti Mánadís frá Margrétarhofi Bleikálskj. 10 Hrímnir/Export hestar
12 Guðmundur Björgvinsson Austri frá Úlfsstöðum Bragi frá Kópavogi Sýn frá Söguey Brúnn 10 Lífland
13 Ásmundur Ernir Snorrason Frægur frá Strandarhöfði Hnokki frá Fellskoti Framtíð frá Árnagerði Rauður 10 Auðsholtshjáleiga
14 Sylvía Sigurbjönsdóttir Kolbakur frá Morastöðum Herjólfur frá Ragnheiðarstöðum Kolbrá frá Litla-Dal Jarpur 8 Auðsholtshjáleiga
15 Hulda Gústafsdóttir Draupnir frá Brautarholti Aron frá Strandarhöfði Alda frá Brautarholti Brúnn 10 Hestvit / Árbakki / Sumarliðabær
16 Villiköttur Ganghestar/Margrétarhof
17 Bergur Jónsson Glampi frá Ketilsstöðum Álffinnur frá Syðri-Gegnishólum Ör frá Ketilsstöðum Rauðnös. 8 Gangmyllan
18 Viðar Ingólfsson Maístjarna frá Árbæjarhjáleigu II Óskar frá Blesastöðum 1A Móa frá Skarði Brún 8 Hrímnir/Export hestar
19 Uppboðssæti
20 Helga Una Björnsdóttir Þoka frá Hamarsey Herjólfur frá Ragnheiðarstöðum Þruma frá Hólshúsum Bleikál. 8 Hrímnir/Export hestar
21 Hanne Oustad Smidesang Roði frá Hala Mídas frá Kaldbak Fiðla frá Hala Rauður 10 Torfhús retreat
22 Matthías Leó Matthíasson Taktur frá Vakurstöðum Smári frá Skagaströnd Líra frá Vakurstöðum Brúnn 8 Top Reiter
23 Arnar Bjarki Sigurðarson Dáð frá Jaðri Stígandi frá Stóra-Hofi Glóð frá Feti Rauð 12 Torfhús retreat
24 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Kveikur frá Stangarlæk 1 Sjóður frá Kirkjubæ Raketta frá Kjarnholtum I Brúnn 7 Ganghestar/Margrétarhof
25 Hinrik Bragason Hrókur frá Hjarðartúni Dagur frá Hjarðartúni Hryðja frá Margrétarhofi Rauðbles 8 Hestvit / Árbakki / Sumarliðabær

Flugskeið 100m - Meistaraflokkur

1 Bjarni Bjarnason Jarl frá Þóroddsstöðum Stáli frá Kjarri Gunnur frá Þóroddsstöðum Rauðurtvístj 10 Auðsholtshjáleiga
2 Arnar Bjarki Sigurðarson Blikka frá Þóroddsstöðum Kjarval frá Sauðárkróki Þoka frá Hörgslandi II Fífilbleikst. 13 Torfhús retreat
3 Teitur Árnason Losti frá Ekru Sólbjartur frá Flekkudal Lína frá Bakkakoti Brúnn 8 Top Reiter
4 Sylvía Sigurbjörnsdóttir Óliver frá Hólaborg Smári frá Skagaströnd Ópera frá Laugavöllum Bleikál. 8 Auðsholtshjáleiga
5 Villiköttur Gangmyllan
6 Hinrik Bragason Skúta frá Skák Þytur frá Neðra-Seli Lukka frá Búlandi Brún 11 Hestvit/Árbakki/Sumarliðabær
7 Sigurbjörn Bárðarson Vökull frá Tunguhálsi II Adam frá Ásmundarstöðum Pólstjarna frá Tunguhálsi II Brúnn 11 Torfhús retreat
8 Þórarinn Ragnarsson Hákon frá Sámsstöðum Þokki frá Kýrholti Orka frá Höskuldsstöðum Bleikál. 10 Hrímnir/Export hestar
9 Guðmundur Björgvinsson Glúmur frá Þóroddsstöðum Ófeigur frá Þorláksstöðum Vera frá Þóroddsstöðum Brúnn 12 Lífland
10 Hanne Oustad Smidesang Lukka frá Úthlíð Borði frá Fellskoti Gjöf frá Bergstöðum Brún 10 Torfhús retreat
11 Konráð Valur Sveinsson Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II Gídeon frá Lækjarbotnum Hekla frá Skarði Rauðstj. 13 Top Reiter
12 Hans Þór Hilmarsson Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði Vídalín frá Hamrahóli Kría frá Stóra-Vatnsskarði Rauðstj. 11 Hrímnir/Export hestar
13 Davíð Jónsson Irpa frá Borgarnesi Þór frá Þúfu í Landeyjum Frigg frá Fossnesi Jörp 14 Lífland
14 Jóhanna Margrét Snorradóttir Hrafnhetta frá Hvannstóði Hruni frá Breiðumörk 2 Ösp frá Hvannstóði Brúnskj. 14 Hestvit/Árbakki/Sumarliðabær
15 Árni Björn Pálsson Skykkja frá Breiðholti í Flóa Kolskeggur frá Oddhóli Fylking frá Halldórsstöðum Brún 10 Top Reiter
16 Sigurður Sigurðarson Drift frá Hafsteinsstöðum Andri frá Hafsteinsstöðum Orka frá Hafsteinsstöðum Grá 19 Gangmyllan
17 Jakob S. Sgurðsson Jarl frá Kílhrauni Kaldi frá Meðalfelli Harpa frá Kílhrauni Rauðskj. 8 Lífland
18 Gústaf Ásgeir Hinriksson Rangá frá Torfunesi Gyllingur frá Torfunesi Röst frá Torfunesi Móál. 9 Hestvit/Árbakki/Sumarliðabær
19 Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir Ása frá Fremri-Gufudal Ófeigur frá Þorláksstöðum Þoka frá Stykkishólmi Rauð 13 Ganghestar/Margrétarhof
20 Reynir Örn Pálmason Líf frá Framnesi Gaumur frá Auðsholtshjáleigu Veiga frá Búlandi Jörpstj. 9 Ganghestar/Margrétarhof
21 Sigurður Vignir Matthíasson Léttir frá Eiríksstöðum Vængur frá Eiríksstöðum Vonar-Stjarna frá Bröttuhlíð Jarpskj. 19 Ganghestar/Margrétarhof

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert