Ráðin þjálfari 21 árs landsliðsins

Hekla Katharína Kristinsdóttir og Kristinn Skúlason, formaður Landsliðsnefndar LH undirrita …
Hekla Katharína Kristinsdóttir og Kristinn Skúlason, formaður Landsliðsnefndar LH undirrita samninginn. Ljósmynd/LH

Hekla Katharína Kristinsdóttir hefur verið ráðin liðsþjálfari U21-landsliðshóps Landssambands hestamannafélaga frá og með 1. janúar 2020.

Hekla útskrifaðist sem reiðkennari frá Háskólanum á Hólum árið 2012 og starfar við þjálfun og reiðkennslu á Árbæjarhjáleigu í Rangárþingi ytra. Hekla hefur átt farsælan keppnisferil frá barnsaldri og er virkur dómari hjá GDLH.

Arnar Bjarki Sigurðsson fráfarandi U-21 landsliðsþjálfari tekur við starfi aðstoðarþjálfara A-landsliðs frá áramótum.

„LH býður Heklu velkomna til starfa og Arnar Bjarka velkominn til áframhaldandi starfa við landsliðsteymi LH,“ segir í tilkynningu félagsins í dag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert