Lágmörk hækkuð fyrir Íslandsmótið í hestaíþróttum

Árni Björn Pálsson er ríkjandi Íslandsmeistari í tölti.
Árni Björn Pálsson er ríkjandi Íslandsmeistari í tölti. Ljósmynd/lhhestar.is

Hestamannafélagið Geysir heldur Íslandsmót fullorðinna og ungmenna í hestaíþróttum á Hellu dagana 12. til 16. ágúst 2020.

Keppnisnefnd LH hefur gefið út lágmörk inn á Íslandsmót og þau hafa verið hækkuð um 0,4 frá því sem verið hefur undanfarin ár í tölti T1, fjórgangi og fimmgangi og um 0,2 í gæðingaskeiði.

Það er parið, hesturinn og knapinn sem þurfa að ná eftirfarandi lágmörkum og mega einkunnir parsins vera allt að tveggja ára gamlar. Einkunnir sem nást í T1, T2, V1, F1, PP1, ásamt einkunnum sem nást í T3, V2, F2, T4 duga til þátttöku á Íslandsmóti. Engin lágmörk eru í ungmennaflokki.

Lágmörk fyrir Íslandsmót 2020 eru sem hér segir:

Tölt T1 6,9
Fjórgangur V1 6,6
Fimmgangur F1 6,4
Tölt T2 6,2
Gæðingaskeið PP1 6,7
250 m skeið 26 sekúndur
150 m skeið 17 sekúndur
100 m skeið 9 sekúndur

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert