Konráð og Davíð sigurvegarar

Skeiðmóti Meistaradeildarinnar í hestaíþróttum lauk í dag og aðeins eitt mót er eftir, 27. mars. Keppnin var æsispennandi en hún hófst á gæðingaskeiði.

Það var Davíð Jónsson sem vann gæðingaskeiðið á Irpu frá Borgarnesi en þau hlutu 7,83 í einkunn. Með sömu einkunn var Jóhann Kristinn Ragnarsson á Þórvöru frá Lækjarbotnum í öðru sæti en þegar knapar eru jafnir í fyrsta til öðru sæti í gæðingaskeiði ráða einkunnir dómara (þ.e. ekki tími) og stóð þá Davíð uppi sem sigurvegari.

Í þriðja sæti var sigurvegari 150 m skeiðsins, Konráð Valur, á Kjarki með 7,54 í einkunn. Lið Hestvits/Árbakka hlaut liðaskjöldinn fyrir gæðingaskeiðið en liðsmenn eru Jóhann (2. sæti), Hinrik Bragason (5. sæti) og Gústaf Ásgeir Hinriksson (15. sæti).

Eins og áður kom fram var það Konráð Valur Sveinsson sem vann 150 m skeiðið á Kjarki frá Árbæjarhjáleigu II með langbesta tíma dagsins, 14,17 sek., en þeir kepptu fyrir lið Top Reiter. En þetta er ótrúlegt par og gaman að benda á það að þeir náðu þessum tíma í fjórða spretti en þeir kepptu einnig í gæðingaskeiðinu á undan 150 m skeiðinu.

Í öðru sæti var liðsmaður Gangmyllunnar, Sigurður Sigurðarson, á Drift frá Hafsteinsstöðum en þau voru með tímann 14,92 sek. og í þriðja sæti varð Davíð Jónsson á Glóríu frá Skógskoti með tímann 15,05 sek., en þau keppa fyrir lið Eques/Kingsland. Það var lið Hjarðartúns sem hlaut liðaskjöldinn en tveir liðsmenn voru í topp tíu og sá þriðji í ellefta sæti, Hans Þór Hilmarsson (4. sæti), Þórarinn Ragnarsson (9. sæti) og Jakob S. Sigurðsson.

Lið Hjarðartúns hefur náð að tryggja sér nokkuð góða forustu í liðakeppninni með 300 stig, 54,5 stigum á undan næsta liði, Hrímni/Exporthestum. Það er þó enn nóg af stigum eftir í pottinum en tvær greinar eru eftir, tölt og flugskeið. Lið Hestvits/Árbakka átti góðan dag og náði að færa sig úr fimmta sætinu í það þriðja með 235,5 stig.

Jakob Svavar Sigurðsson er enn efstur í einstaklingskeppninni með 37 stig. Viðar Ingólfsson er í öðru sæti en hann náði að minnka muninn um tvö stig í dag og munar nú 14 stigum á þeim félögum. Í þriðja sæti eru þau jöfn Elin Holst, Davíð Jónsson og Konráð Valur með 20 stig. Það sem er gaman við skeiðdaginn er að þá sjáum við oft nýja knapa blanda sér í einstaklingskeppnina en hvorki Davíð né Konráð höfðu keppt fyrir daginn í dag og því báðir stigalausir.

Hægt er að sjá meira um stöðu í einstaklings- og liðakeppninni inni á heimasíðu Meistaradeildarinnar

www.meistaradeild.is/stadja

Næsta mót fer fram föstudaginn 27. mars í Samskipahöllinni. Vegna samkomubanns verða engir áhorfendur á mótinu en allir geta fylgst með því í beinni á RÚV 2 eða inni á oz.com/meistaradeildin.

Niðurstöður — gæðingaskeið

Sæti     Knapi   Hestur  Lið       Einkunn

1          Davíð Jónsson    Irpa frá Borgarnesi         Eques/Kingsland          7.83

2          Jóhann Kristinn Ragnarsson         Þórvör frá Lækjarbotnum            Hestvit / Árbakki            7.83

3          Konráð Valur Sveinsson  Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II     Top Reiter         7.54

4          Helga Una Björnsdóttir   Penni frá Eystra-Fróðholti           Hjarðartún         7.46

5          Hinrik BragasonHrafnhetta frá Hvannstóði           Hestvit/Árbakki            7.38

6          Sigursteinn Sumarliðason            Krókus frá Dalbæ           Eques/Kingsland          7.29

7          Jóhann Magnússon         Óskastjarna frá Fitjum    Auðsholtshjáleiga/Horse export / Strandarhöfuð   7.21

8          Sigurður Vignir Matthíasson        Léttir frá Eiríksstöðum    Ganghestar/Austurás     7.17

9          Viðar IngólfssonÖr frá Mið-Fossum         Hrímnir/Export hestar   6.79

10         Edda Rún Ragnarsdóttir  Tign frá Fornusöndum    Ganghestar/Austurás     6.75

11         Jakob Svavar SigurðssonNökkvi frá Syðra-Skörðugili       Hjarðartún         6.75

12         Sigvaldi Lárus Guðmundsson       Tromma frá Skógskoti    Hrímnir/Export hestar   6.63

13         Ásmundur Ernir Snorrason          Fáfnir frá Efri-RauðalækAuðsholtshjáleiga / Horse export/Strandarhöfuð   6.58

14         Hans Þór Hilmarsson      Goði frá Bjarnarhöfn      Hjarðartún         6.54

15         Gústaf Ásgeir HinrikssonRangá frá Torfunesi        Hestvit/Árbakki            6.54

16         Sigurður Sigurðarson      Tromma frá Skúfslæk     Gangmyllan       6.54

17         Bergur Jónsson  Gjóska frá Kolsholti 3     Gangmyllan       6.50

18         Fredrica Fagerlund         Snær frá Keldudal          Hrímnir/Export hestar   6.50

19         Sylvía Sigurbjörnsdóttir  Hálfdán frá Oddhóli       Auðsholtshjáleiga/Horse export/Strandarhöfuð   6.46

20         Hanna Rún Ingibergsdóttir          Flótti frá Meiri-Tungu 1  Eques/Kingsland          6.42

21         Glódís Rún Sigurðardóttir           Leira-Björk frá NaustumGanghestar/Austurás     6.00

22         Ævar Örn Guðjónsson     Tanja frá Eystri-Hól       Gangmyllan       5.75

23         Árni Björn Pálsson         Seiður frá Hlíðarbergi     Top Reiter         3.21

24         Teitur Árnason   Bandvöttur frá Miklabæ  Top Reiter         0.33

Niðurstöður — 150 m skeið

Sæti      Knapi    Hestur   Lið       Betri tími

1          Konráð Valur Sveinsson  Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II     Top Reiter         14.17

2          Sigurður Sigurðarson      Drift frá Hafsteinsstöðum            Gangmyllan       14.92

3          Davíð Jónsson    Glóra frá Skógskoti        Eques/Kingsland          15.05

4          Hans Þór Hilmarsson      Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði       Hjarðartún         15.08

5          Þórdís Erla Gunnarsdóttir            Óskastjarna frá Fitjum    Auðsholtshjáleiga/Horse export/Strandarhöfuð   15.11

6          Guðmundur Friðrik BjörgvinssonStolt frá Laugavöllum     Eques/Kingsland          15.11

7          Jóhann Kristinn Ragnarsson         Þórvör frá Lækjarbotnum            Hestvit/Árbakki            15.20

8          Gústaf Ásgeir HinrikssonRangá frá Torfunesi        Hestvit/Árbakki            15.30

9          Þórarinn Ragnarsson       Funi frá Hofi     Hjarðartún         15.30

10         Hinrik BragasonHrafnhetta frá Hvannstóði           Hestvit/Árbakki            15.35

11         Jakob Svavar SigurðssonSkúta frá Skák   Hjarðartún         15.36

12         Viðar IngólfssonÓpall frá MiðásiHrímnir/Export hestar   15.38

13         Fredrica Fagerlund         Snær frá Keldudal          Hrímnir/Export hestar   15.42

14         Ásmundur Ernir Snorrason          Fáfnir frá Efri-RauðalækAuðsholtshjáleiga/Horse export/Strandarhöfuð   15.60

15         Bergur Jónsson  Sædís frá Ketilsstöðum   Gangmyllan       15.62

16         Jóhann Magnússon         Óskastjarna frá Fitjum    Auðsholtshjáleiga/Horse export/Strandarhöfuð   15.65

17         Sigurður Vignir Matthíasson        Léttir frá Eiríksstöðum    Ganghestar/Austurás     15.73

18         Flosi Ólafsson    Snafs frá Stóra-Hofi       Hrímnir/Export hestar   15.92

19         Edda Rún Ragnarsdóttir  Tign frá Fornusöndum    Ganghestar/Austurás     16.77

20         Hanna Rún Ingibergsdóttir          Birta frá Suður-Nýjabæ   Eques/Kingsland          16.78

21-24    Teitur Árnason   Loki frá Kvistum            Top Reiter         0.00

21-24    Glódís Rún Sigurðardóttir           Blikka frá Þóroddsstöðum           Ganghestar/Austurás     0.00

21-24    Árni Björn Pálsson         Seiður frá Hlíðarbergi     Top Reiter         0.00

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert