Meistaradeildin ríður á vaðið

Jakob Svavar Sigurðsson á Hálfmána frá Steinsholti.
Jakob Svavar Sigurðsson á Hálfmána frá Steinsholti. Ljósmynd/Petra Lönnqvist

Stjórn Meistaradeildarinnar í hestaíþróttum hefur ákveðið að halda lokamót deildarinnar fimmtudaginn 7. maí.

Mótið verður haldið í Samskipahöllinni en engir áhorfendur verða leyfðir á staðnum. Sýnt verður beint frá mótinu í sjónvarpinu á RÚV 2.

Það stefnir í og harða og spennandi keppni á lokasprettinum, þar sem jafnt er á milli liða sem og keppnisknapa. Í lok keppninnar verða sigurvegarar krýndir bæði hjá knöpum og keppnisliðum.

Staðan fyrir lokamótið er þessi:

Einstaklingskeppnin:

  1. Jakob Svavar Sigurðsson 38 stig
  2. Viðar Ingólfsson 23 stig
  3. Elin Holst 20 stig
    3. Davíð Jónsson 20 stig
  4. Konráð Valur Sveinsson

Liðakeppnin:

  1. Hjarðartún 299 stig
  2. Hrímnir / Export hestar 251,5 stig
  3. Gangmyllan 236 stig
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert