Heimsmeistaramótinu aflýst

Ekkert verður af Heimsmeistaramóti íslenska hestsins í ár.
Ekkert verður af Heimsmeistaramóti íslenska hestsins í ár. Eggert Jóhannesson

Heimsmeistaramóti íslenska hestsins, sem átti að fara fram í Herning í Danmörku í ágúst, hefur verið aflýst.

Alþjóðasamtök íslenska hestisns, FEIF, gáfu í morgun út tilkynningu þess efnis að búið væri að taka þessa ákvörðun.

Ástæðan er óvissa í tengslum við kórónuveirufaraldurinn og þær miklu líkur sem eru taldar á því að ekki gætu allir meðlimir FEIF tekið þátt í mótinu.

„Í anda sannrar merkingar sanngjarnrar keppni er ekki hægt að halda mótið með heimsins bestu íslensku hestunum og knöpum,“ segir meðal annars í tilkynningu FEIF og ítrekað er að ákvörðunin hafi reynst samtökunum þungbær.

Næsta heimsmeistaramót íslenska hestsins verður haldið í Hollandi árið 2023.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert