„Þetta var rosalega gaman og heppnaðist eiginlega öll sýningin hjá okkur,“ segir Matthías Sigurðsson, nýkrýndur landsmótssigurvegari í ungmennaflokki á hestinum Tuma frá Jarðbrú.
Matthías og Tumi fóru lengri leiðina að bikarnum. Þeir voru efstir eftir forkeppnina með 8,91 í einkunn en í milliriðlum höfnuðu þeir í tólfta sæti og í B-úrslitum. Þá var markmiðið sett að vinna B-úrslitin og næla sér í þátttökurétt í A-úrslitum, sem þeir gerðu og sigruðu með 9,09 í einkunn.
„Að koma úr B-úrslitum gerði mig hungraðri í að reyna vinna þetta og gerði sigurinn aðeins sætari.“
Þeir félagar komu inn í A-úrslitin fullir af sjálfsöryggi sem endurspeglaðist á vellinum og sigruðu örugglega með 9,03 í einkunn.
Þetta er fyrsta keppnistímabilið hjá Matthíasi og Tuma en stefnan frá byrjun var alltaf landsmótsbikarinn.
„Ég kynntist honum í október og ég hugsaði um leið og ég settist á hann að ég ætlaði að standa með þennan bikar.“
Tumi frá Jarðbrú er fyrstu verðlauna stóðhestur í eigu vinafólks Matthíasar. Aðspurður um hestinn kveðst hann eiga erfitt að finna réttu orðin til lýsa honum.
„Hann er einstakur gæðingur, viljugur, mjúkur, þjáll og skemmtilegur. Það er hægt að lýsa honum á margan hátt, hann er algjör meistari.“
Dagskráin í dag var þétt en rétt fyrir ungmennaflokk var riðið til A-úrslita í B-flokki sem pabbi Matthíasar, Sigurður Vignir Matthíasson, sigraði á stóðhestinum Safír frá Mosfellsbæ með 9,02.
„Það er geðveikt að koma á eftir pabba, ég fann að mig langaði bara líka að vinna. Það er ekki oft sem að feðgar vinna svona úrslit á sama ári. Þetta var svona gluggi sem var opinn og við náðum honum.“
Feðgarnir höfðu lítinn tíma til að fagna saman en næst á dagskrá hjá Sigurði voru A-úrslit í A-flokki þar sem hann hafnaði í sjötta sæti.