Landsmót hestamanna í Víðidal 2024 lauk í dag með A-úrslitum í A-flokki. Árni Björn Pálsson og gæðingshryssan Álfamær frá Prestsbæ stóðu uppi sem sigurvegarar greinarinnar.
„Það er stórkostlegt að vinna A-flokkinn þetta er það stærsta sem maður getur gert á landsmóti.“
Þetta er í fyrsta skipti í sögu Landsmóts sem hryssa vinnur A-flokk en stóðhestar hafa ætíð verið með yfirburði í greininni.
„Hún er einstakur gæðingur með einstakan karakter og beitir sér alltaf fyrir knapann. Það er rúsínan í pylsuendanum að vinna A-flokk á hryssu.“
Landsmótið héldu hestamannafélögin Fákur og Sprettur í sameiningu með góðum árangri. Mótið gekk stóráfallalaust fyrir sig og var mikil ánægja meðal mótsgesta.
Þetta var hin fullkomna helgi hestamanna, en íslensk sumarblíða lék við mótsgesti í brekkunni er íslenskir gæðingar léku listir sínar á vellinum. Nú er bara að bíða eftir Landsmóti á Hólum 2026.