Kvikmyndastjarnan tók bikarinn

Vinkonurnar Ída Mekkín og Marín geisluðu á vellinum í dag.
Vinkonurnar Ída Mekkín og Marín geisluðu á vellinum í dag. mbl.is/Herdís Tómasdóttir

Ída Mekkín Hlynsdóttir og Marín frá Lækjarbrekku II eru landsmótssigurvegarar í unglingaflokki árið 2024 með 8,96 í einkunn.

„Þetta var bara geðveikt gaman. Hún var geggjuð,“ segir Ída brosandi út að eyrum.

Hornfirðingurinn Ída ætti að vera kunnug landsmönnum, en hún greip hjörtu alþýðunnar með leik sínum í kvikmyndinni Hvítur, hvítur dagur sem pabbi hennar Hlynur Pálmason leikstýrði.

Sterkur unglingaflokkur

Ída og Marín voru efstar eftir forkeppni með einkunnina 8,79, þær enduðu síðan í fjórða sæti eftir milliriðla með 8,68.

„Það var mjög þægilegt að koma inn í A-úrslitin ekki efst, það er miklu meira stressandi að vera efst. Ég reyndi að spara hana í milliriðlinum svo hún fengi þennan kraft í úrslitunum.“

Keppnin var hörð og mátti litlu muna á fyrsta og öðru sæti sem hafnaði með 8,93. A-úrslitin voru spennuþrungin og mátti litlu muna á Ídu og Svandísi Aitken Sævarsdóttur sem hafnaði í öðru með 8,93 í einkunn.

„Eftir hæga töltið og brokkið var ég viss um að þetta myndi takast hjá okkur.“

Folaldseignir í framtíðinni

Ída og Marín hafa átt samleið í nokkur ár og lýsir Ída henni sem algjörum listagæðingi.

„Hún er með alveg frábært geðslag bara það besta sem ég hef kynnst. Hún er ótrúlega hlý og góð við alla nema reyndar önnur hross, ekkert hrifin af þeim. Ég er bara ótrúlega heppin að hafa kynnst henni því hún er svo sterkur karakter.“

Þetta er síðasta keppnin hjá Marín en næst á dagskrá hjá henni eru folaldseignir.

„Hún ætlar að gefa mér marga landsmótssigurvegara.“

Hvernig verður sigrinum fagnað?

„Fyrst að skemmta sér í brekkunni en svo er bara fimm tíma keyrsla heim á Höfn,“ segir Ída.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert