„Þetta var geggjað“

Jakob Svavar Sigurðsson og Skarpur frá Kýrholti landsmótssigurvegarar í tölti …
Jakob Svavar Sigurðsson og Skarpur frá Kýrholti landsmótssigurvegarar í tölti 2024. Ljósmynd/Jón Björnsson

Jakob Svavar Sigurðsson er landsmótssigurvegari í töltkeppni á hestinum Skarpi frá Kýrholti. Sigur þeirra var mjög öruggur og hlutu þeir þá glæsieinkunn 9,39.

„Þetta var geggjað. Við stemmdum að þessu og ég vissi alveg að við ættum töluvert inni eftir forkeppnina,“ sagði Jakob Svavar í samtali við mbl.is.

Talið er að um níu þúsund áhorfendur voru í brekkunni í Víðidal að horfa á sterkustu töltara landsins dansa á brautinni. Keppnin var hörð en kvöldið var þeirra og stóðu þeir upp úr með glæsileika.

„Þetta er búið að vera á stefnuskránni hjá mér lengi. Skarpur var algjörlega hjá mér allan tímann og í raun og veru var þetta bara auðvelt fyrir hann.“

Mikill útgeislunar hestur

Skarpur frá Kýrholti er fyrsti verðlaunahesturinn með 8,63 í aðaleinkunn undan Skruggu frá Kýrholti og heiðurshestinum Skýr frá Skálakoti.

„Þetta er stórbrotinn og stór glæsilegur hestur með frábært tölt og mikla útgeislun.“

Þetta er í fyrsta sinn sem Jakob Svavar sigrar töltkeppni á landsmóti en litlu mátti muna árið 2018. Nú á hann bara einn landsmótstitill eftir, en það er A-flokkurinn.

„Næsta er að vinna A-flokkinn þá verður ferilskráin orðin fullkominn fyrir minn smekk.“ 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert