Ótrúlegur seinagangur á staðfestingu

Konráð Valur Sveinsson fagnar sigri á Landsmótinu í sumar.
Konráð Valur Sveinsson fagnar sigri á Landsmótinu í sumar. Ljósmynd/Jón Björnsson

Alþjóðasamtök íslenska hestsins, FEIF, hafa enn ekki staðfest nýtt heims- og Íslandsmet sem Konráð Valur Sveinsson setti á Landsmóti hestamanna í lok júlí í 150 metra skeiði.

Það er Eiðfaxi sem greinir frá þessu en Konráð Valur kom í mark á tímanum 13,46 sekúndum. Hann fagnaði einnig sigri í 100 metra og 250 metra skeiði á mótinu.

Í frétt Eiðfaxa kemur meðal annars fram að miðillinn hafi fengið þau svör frá Landssmbandi Hestamanna að ekki væri ennþá búið að staðfesta metið vegna sumarleyfa starfsmanna.

Í frétt miðilsins kemur einnig fram að síðast þegar heimsmet var sett í skeiði, árið 2021, tók það aðeins tvo daga að staðfesta heimsmetið.

„Allar aðstæður voru löglegar á Íslandsmótinu og því ekkert því til fyrirstöðu að metið standi,“ segir meðal annars í frétt miðilsins.

Fréttin hefur verið uppfærð eftir að upphafleg frétt Eiðfaxa var leiðrétt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert