Hinn 39 ára gamli Rafael Márquez á möguleika á að spila í úrslitakeppni HM í knattspyrnu í fimmta sinn en hann hefur verið valinn í 28 leikmannahóp Mexíkó.
Hópurinn verður skorinn niður í 23 leikmenn í byrjun júní og verði Márquez í honum verður hann fjórði leikmaðurinn í sögunni til að taka þátt í fimm úrslitakeppnum HM.
Hinir þrír leikmennirnir eru Mexíkóinn Antonio Carbajal (1950-1966), Þjóðverjinn Lothar Matthäus (1982-1998) og ítalski markvörðurinn Gianluigi Buffon (1998-2014).