Var betri en Messi og Agüero

Gylfi Þór Sigurðsson og Max Meza í baráttu um boltann …
Gylfi Þór Sigurðsson og Max Meza í baráttu um boltann í gær. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Stuðningsmenn Everton hrósuðu Gylfa Þór Sigurðssyni í hástert fyrir frammistöðu hans í leiknum gegn Argentínu á HM í knattspyrnu í gær.

Fjölmargir stuðningsmenn Everton hlóðu Gylfa lofi á Twitter og þeir vona að Marco Silva hinn nýráðni knattspyrnustjóri Everton hafi verið að fylgjast með leiknum og geri Gylfa að lykilmanni Everton á komandi leiktíð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert