Neymar meiddist á æfingu

Neymar var léttur á æfingu liðsins í morgun, áður en …
Neymar var léttur á æfingu liðsins í morgun, áður en hann haltraði af velli. AFP

Neymar, sóknarmaður brasilíska landsliðsins í knattspyrnu meiddist á æfingu liðsins í dag en það er Sky Sports sem greinir frá þessu. Neymar haltraði af velli og gat ekki tekið þátt í restinni af æfingunni en hann spilaði síðast með félagsliði sínu PSG í lok febrúar.

Hann hefur verið að jafna sig á meiðslum en hann fótbrotnaði í febrúar. Hann æfði ekki með liðinu í gær en hann spilaði allan leikinn í 1:1 jafntefli Brasilíu gegn Sviss í fyrstu umferð E-riðils heimsmeistaramótsins. 

Brasilía mætir Kostaríka 22. júní næstkomandi í Pétursborg og þarf liðið nauðsynlega á sigri að halda eftir jafnteflið gegn Sviss í fyrstu umferðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert