Rússar eru í sjöunda himni en eftir 3:1 sigur Rússa gegn Egyptum eru þeir komnir áfram i 16-liða úrslitum á HM, fyrstir allra liða.
Fjölmiðlar í Rússlandi halda ekki vatni yfir frammistöðu rússneska liðsins sem hefur unnið báða leiki sína á mótinu og eru með markatöluna, 8:1.
„Öll þjóðin er ástfangin af liði sínu. Ef þetta er draumur, ekki vekja okkur. Við viljum sjá úrslitaleikinn,“ segir í frétt í rússneska blaðinu Komsomolskaya Pravda.
„Besta í sögunni er að rússneska liðið sýndi frammúrskarandi fótbolta og gerði alla þjóðina hamingjusama,“ segir í frétt í blaðinu Izvestia.