Ísland verður erfiðara en Argentína

Victor Moses.
Victor Moses. AFP

Victor Moses, kantamaður nígeríska landsliðsins og Chelsea, reiknar með erfiðari leik á móti Íslendingum heldur en gegn Argentínumönnum.

Nígeríumenn töpuðu 2:0 á móti Króötum í fyrstu umferðinni og þeir þurfa því á sigri að halda í leiknum gegn Íslendingum í Volgograd á föstudaginn.

„Vitaskuld verður leikurinn á móti Íslandi ekki auðveldur. Íslenska liðið er mjög vel skipulagt og það lék virkilega vel á móti Argentínu. Fyrir mér verður leikurinn á móti Íslendingum erfiðari heldur en leikurinn við Argentínu,“ sagði Moses við fréttamenn.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert