Eru ekki í kynlífsbanni

Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari kátur eftir leikinn á móti Argentínu.
Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari kátur eftir leikinn á móti Argentínu. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari þurfti að svara mörgum spurningum á fréttamannafundi sem nú stendur yfir á Volgograd Arena í Rússlandi.

Heimir var meðal annars spurður að því hvort leikmenn séu í kynlífsbanni á meðan á HM stendur. Eyjamaðurinn svaraði;

„Alla vega á meðan að konurnar eru ekki komnar,“ sagði Heimir léttur. „Nei, þeir eru það ekki,“ bætti hann við, en leikmenn fá að hitta konur sínar og kærustur í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert