Tilbúnir að deyja

Nígeríumenn á æfingu í gær.
Nígeríumenn á æfingu í gær. AFP

Wilfred Ndidi, leikmaður nígeríska landsliðsins, segir að leikmenn liðsins séu tilbúnir að leggja allt í sölurnar í leiknum gegn Íslendingum en þjóðirnar eigast við á HM á Volgograd Arena á morgun.

„Við erum búnir að skilja við tapleikinn á móti Króatíu og við munum gefa allt sem við eigum í leikinn á móti Íslendingum. Við erum vel einbeittir og klárir í þennan mikilvæga og erfiða leik. Við erum tilbúnir að deyja,“ segir Ndidi, sem leikur með enska úrvalsdeildarliðinu Leicester City.

Tvær Afríkuþjóðir eru þegar úr leik, Egyptaland og Marokkó, og tapi Nígeríumenn fyrir Íslendingum á morgun bíða þeirra sömu örlög.

Nígeríumenn mættu til Volgograd í morgun og æfa á Volgrod Arena síðdegis í dag.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert