Verða örugglega einhverjar breytingar

Heimir Hallgrímsson á fréttamannafundinum á Volgograd Arena í dag.
Heimir Hallgrímsson á fréttamannafundinum á Volgograd Arena í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari gaf það í skyn á fréttamannafundi íslenska landsliðsins í Volgograd í dag að breytingar verði á byrjunarliði Íslands frá jafnteflisleiknum gegn Argentínu um síðustu helgi.

Nær öruggt þykir að Jóhann Berg Guðmundsson geti ekki spilað á morgun vegna meiðsla í kálfa sem hann varð fyrir í leiknum gegn Argentínu en Jóhann Berg æfði ekki með liðinu í dag.

Heimir var spurður á fréttamannafundinum hvort byrjunarliðið breytast og svaraði hann þannig;

„Við vorum alltaf búnir að vera með plan í huga en það verða örugglega einhverjar breytingar hjá okkur. Það var alltaf í huga okkar. Ég mun auðvitað ekki gefa upp hverjar þær verða,“ segir Heimir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert