Í gærkvöldi sigraði Króatía Argentínu 3:0 í D-riðli heimsmeistaramótsins í knattspyrnu. Dejen Lovren átti frábæran leik í hjarta varnarinnar og átti stóran þátt í því að halda Messi og öðrum stórstjörnum Argentínu algerlega niðri.
Í viðtölum eftir leik var Lovren eðlilega hátt uppi. Hann sagði að króatíska landsliðið væri hvergi nærri hætt á HM og næst á dagskrá væri að hefna ófaranna gegn Íslandi síðan í undanriðlunum:
„Við ætlum líka að sigra Ísland. Við þurfum að borga þeim til baka. Við höfum okkar ástæður og við ætlum okkur að ná í þessi þrjú stig. Eftir leikinn munum við sjá hverjum við mætum.“
Ísland og Króatía mætast 26. júní í síðasta leik D-riðils og gæti hann skorið úr um hvort Ísland komist upp úr riðlakeppninni eða ekki.