Leikmenn Íslands mættir á Volgograd Arena

Íslensku landsliðsmennirnir virða völlinn fyrir sér.
Íslensku landsliðsmennirnir virða völlinn fyrir sér. Eggert Jóhannesson

Leikmenn íslenska liðsins eru mættir á Volgograd Arena þar sem það mætir Nígeríu eftir klukkustund. Þeir virtust glaðir í bragði þegar þeir virtu leikvanginn fyrir sér rétt í þessu. 

Byrjunarlið Íslands liggur fyrir líkt og mbl greindi frá, en tvær breytingar voru gerðar á byrjunarliðinu frá síðasta leik Íslands.

Jóhann Berg Guðmundsson, sem meiddist í leiknum gegn Argentínu, vermir varamannabekkinn að þessu sinni, en hann gekk þó með liðinu um völlinn og virtist glaður í bragði.  

Heimir Hallgrímsson, þjálfari íslenska liðsins.
Heimir Hallgrímsson, þjálfari íslenska liðsins. mbl.is/Eggert
Jóhann Berg Guðmundsson var með liðinu á vellinum en það …
Jóhann Berg Guðmundsson var með liðinu á vellinum en það liggur fyrir að hann er ekki í byrjunarliðinu vegna meiðsla í leiknum gegn Argentínu. mbl.is/Eggert
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert