„Auðvelt að spila með Lukaku“

Fyrirliðinn var kátur í dag.
Fyrirliðinn var kátur í dag. AFP

Eden Hazard, fyrirliði Belgíu, var að vonum ánægður eftir 5:2-sigurinn á Túnis í öðrum leik liðanna í E-riðil heimsmeistaramótsins í Rússlandi.

Hazard skoraði sjálfur tvö mörk ásamt liðsfélaga sínum Romelu Lukaku og hrósaði hann framherjanum í hástert. „Það er auðvelt að spila með Romelu Lukaku, þú sendir boltann á hann og hann skorar. Hann er frábær,“ sagði Hazard við fjölmiðla eftir leikinn.

„Við unnum þennan leik og fögnum því. Við getum gert betur og mætum Englandi næst um toppsæti riðilsins,“ sagði hann að endingu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert