„Þurfum alls ekki kraftaverk“

Birkir Bjarnason vonsvikinn eftir leikinn gegn Nígeríu í gær.
Birkir Bjarnason vonsvikinn eftir leikinn gegn Nígeríu í gær. AFP

„Við þurfum alls ekki kraftaverk. Af hverju?,“ sagði landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason við norska blaðið Verdens Gang eftir 2:0 ósigur Íslendinga gegn Nígeríumönnum á HM í knattspyrnu í Volgograd í Rússlandi í gær.

Í lokaumferð D-riðilsins á þriðjudaginn mætir Ísland liði Króatíu og Nígería leikur við Argentínu. Króatar eru komnir áfram, eru á toppnum með 6 stig, Nígería er með 3 og Ísland og Argentína 1.

„Við eigum góða möguleika ennþá. Lítið bara á stigatöfluna,“ sagði Birkir við VG.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert