Agüero á bekknum gegn Nígeríu?

Sergio Agüero fær ekki að byrja gegn Nígeríu.
Sergio Agüero fær ekki að byrja gegn Nígeríu. AFP

Argentínskir fjölmiðlar fullyrða það í dag að Jorge Sampaoli, þjálfari argentínska landsliðsins í knattspyrnu, ætli sér að hafa Sergio Agüero, framherja liðsins, á bekknum þegar liðið mætir Nígeríu í lokaleik sínum í D-riðli heimsmeistaramótsins í Pétursborg á morgun.

Agüero hefur byrjað báða leiki liðsins í riðlakeppninni til þessa en framherjinn skoraði eina mark Argentínu í 1:1-jafntefli gegn Íslandi í Moskvu í fyrstu umferðinni. Liðið tapaði svo 3:0 fyrir Króatíu í annarri umferð riðlakeppninnar og verður því að vinna gegn Nígeríu á morgun til þess að eiga möguleika á að fara áfram.

Talið er næsta víst að Gonzalo Higuaín, framherji Juventus, muni taka stöðu Agüeros í liðinu en árangur Argentínu á HM í Rússlandi hefur valdið miklum vonbrigðum. Þá er talið öruggt að Jorge Sampaoli verði rekinn eftir heimsmeistaramótið en leikmenn liðsins eru sagðir vera búnir að missa trúna á honum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert