Ókostur fyrir okkur

Heimir Hallgrímsson brosandi á fréttamannafundinum í dag.
Heimir Hallgrímsson brosandi á fréttamannafundinum í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Landsliðsþjálfari Króata hefur gefið það út að hann ætli að hvíla nokkra af leikmönnum sínum í leiknum gegn Íslendingum á HM á morgun en Króatar eru þegar komnir áfram í 16-liða úrslitin.

Heimir var spurður út í þetta á fréttamannafundi íslenska landsliðsins á Rostov Arena í dag.

„Það er í raun ókostur fyrir okkur, eins skrýtið og það er. Ég held að leikmennirnir sem spilað hafa fyrstu tvo leikina gætu verið minna „mótiveraðir. Þeir gætu forðast spjöld og meiðsli.

Hinir eru vel „gíraðir“ og vilja stimpla sig vel inn fyrir útsláttarkeppninni. Við mætum því liði sem er mjög vel „gírað“. Við vitum að við munum alltaf mæta mjög, mjög góðu liði, sama hverjir verða í byrjunarliðinu,“sagði Heimir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert