Ivan Perisic, einn af lykilmönnum Króata sem mæta Frökkum í úrslitaleiknum á HM í Moskvu á sunnudaginn, gæti misst af leiknum vegna meiðsla sem hann hlaut í undanúrslitaleiknum gegn Englendingum.
Perisic fór á sjúkrahús í Moskvu í gær sem hann fór í myndatöku en það yrði gríðarleg blóðtaka fyrir Króata ef hans nyti ekki við. Perisic hefur verið frábær í liði Króata á HM en hann skoraði sigurmarkið gegn Íslendingum í lokaumferð riðlakeppninnar og skoraði fyrra mark sinna manna í 2:1 sigrinum á móti Englendingum.
Perisic, sem er 29 ára gamall leikmaður Inter og hefur verið á óskalista José Mourinho, knattspyrnustjóra Manchester United, lék allar 120 mínúturnar á móti Englendingum en hann harkaði af sér eftir að fengið högg á fótinn en var sárþjáður í leikslok.