Fred inn fyrir Neymar

Fred er í byrjunarliði Brasilíu.
Fred er í byrjunarliði Brasilíu. AFP/Nélson Almeida

Varnartengiliðurinn Fred, leikmaður Manchester United, kemur inn í byrjunarlið Brasilíu fyrir hinn meidda Neymar fyrir leik liðsins gegn Sviss í G-riðli heimsmeistaramóts karla í knattspyrnu í Katar.

Vænta má þess að Lucas Paquetá, miðjumaður West Ham United, færi sig framar á völlinn við þessa breytingu.

Neymar og Danilo meiddust báðir á ökkla í 2:0-sigrinum á Serbíu í riðlinum í síðustu viku og kemur Éder Militao inn í hægri bakvörðinn fyrir þann síðarnefnda.

Lið Bras­il­íu: (4-3-3)
Mark: Al­isson.
Vörn: Éder Militao, Thiago Silva, Marquin­hos, Alex Sandro.
Miðja: Ca­sem­iro, Fred, Lucas Paqu­etá.
Sókn: Rap­hinha, Richarlison, Vinícius Júni­or.

Lið Sviss: (4-4-2)
Mark: Yann Somm­er.
Vörn: Silv­an Widmer, Manu­el Ak­anji, Nico El­vedi, Ricar­do Rodrigu­ez.
Miðja: Remo Fr­euler, Granit Xhaka, Fabi­an Rieder, Dji­bril Sow.
Sókn: Breel Em­bolo, Ru­ben Vargas.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert