Onana í agabann

Rigobert Song, þjálfari Kamerún, og André Onana á æfingu liðsins …
Rigobert Song, þjálfari Kamerún, og André Onana á æfingu liðsins í gær. AFP/Issouf Sanogo

André Onana, markvörður Kamerún, er ekki á leikskýrslu fyrir leik liðsins gegn Serbíu í G-riðli heimsmeistaramótsins í fótbolta í dag.

Fréttir hafa birst víða í morgun þess efnis að Onana hafi verið settur í agabann. Tvennum sögum fer af því hvers vegna Onana hefur verið settur út í kuldann og einnig hversu lengi.

Einhverjir miðlar greina frá því að markvörðurinn muni ekki leika fleiri leiki fyrir Kamerún á mótinu.

Devis Epassy mun verja mark Kamerún. Leikur Kamerún og Serbíu hefst klukkan 10. Mbl.is fylgist með og færir ykkur það helsta í leiknum í beinni textalýsingu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert